Erlendir nemar einir á báti Derek T. Allen og Björgvin Viktor Færseth skrifa 13. nóvember 2020 10:31 Síðustu tvær annir hafa verið öllum krefjandi og erfiðar. Nemendur finna fyrir auknu álagi, stressi og kvíða. Flestir eru orðnir langþreyttir á kennslu í gegnum samskiptaforritið ZOOM og að fá ekki að hitta fólk upp í skóla, en nærri því öll þessi önn hefur verið kennd á rafrænan máta. En þótt við finnum öll fyrir þessum erfiðleikum þá gleymist oft að hér á landi býr hópur fólks sem er líklega undir enn meira stressi og kvíða heldur en við flest og það er hinn gríðarlega stóri hópur erlendra nema sem stunda nám við Háskóla Íslands. Þessi hópur nýtur ekki þeirra forréttinda að hafa öryggisnet fjölskyldunnar sér við hlið. Hvað gerist ef fólk í þessum hóp er útsett fyrir smiti og þarf að fara í sóttkví eða veikist af kórónaveirunni? Okkur þykir ákvörðun Háskóla Íslands um að ,,þýðingarmikil” lokapróf verði haldin innan veggja Háskólans mjög undarleg. Maður hefði haldið að öll lokapróf væru þýðingamikil og er sérstakt að það sé gert upp á milli einstakra lokaprófa. Einnig er ákvörðunin um að halda staðpróf sérstaklega slæm fyrir þá skiptinema sem þurfa að hanga hér á landi í stað þess að fara fyrr heim til fjölskyldu sinnar og geta þá tekið lokaprófin sín rafrænt, eins og önnin hefur verið kennd. Afleiðingar staðprófa geta verið alvarlegar. Ef að skiptinemar mæta í lokapróf upp í skóla með öllum þessum nemendum sem þar verða er möguleiki á að skiptinemar sem þurfa að mæta í staðpróf smitist eða þurfa að fara í sóttkví og ná því ekki að eyða jólunum með sínum nánustu. Raunveruleg áhrif þess fyrirkomulags gætu verið þau að skiptineminn, ásamt alþjóðlegum nemendum á eigin vegum, myndu lenda í gríðarlegum vandræðum í landi þar sem þau eru með skert réttindi og vita hugsanlega ekki um öll úrræði sem standa þeim til boða. Nemendur sem koma frá landsbyggðinni eru sennilega ekki glaðir með það að þurfa hanga í Reykjavík vegna lokaprófa þá getum rétt ímyndað okkur hvernig það er fyrir erlenda nema þegar það er heilt haf sem stendur á milli þeirra og fjölskyldunnar og kunnuglegra úrræða. Þessi önn er með engu móti hefðbundin. Kennslan hefur ekki verið með hefðbundnum máta og þá er galið að lokapróf eigi að fara fram með hefðbundnum máta. Við hvetjum Háskóla Íslands til að endurskoða ákvarðanir sínar varðandi staðpróf og hugsa um hag hópsins sem gleymist hvað oftast. Höfundar eru alþjóðafulltrúi og ritstjóri Vöku - hagsmunafélags stúdenta. --- International students cast aside These past two semesters have been demanding and difficult for everyone. Students are under increased pressure and are experiencing more stress and anxiety. Most students are fed up with ZOOM classes and not being able to meet up in school due to the entire semester having taken electronic form. Although everyone is having a hard time, we often forget that there is a group of people in this country that are dealing with even more stress and anxiety than most. This group is the massive group of international students that study at the University of Iceland. International students do not enjoy the privilege of having a family right next door. What happens if people in this group are exposed to the virus, have to go into quarantine, or even contract the virus? We believe the University’s decision for “meaningful” final exams to take place within the walls of the University to be very odd. One would think that all final exams were meaningful, so it is peculiar to differentiate between them. This decision is also particularly detrimental to exchange students that have to stay here instead of returning to their home country and taking their final exams electronically, the way the semester has been taught. The outcome of this decision could be serious. If exchange students go to the University to sit exams, they could contract the virus or have to go into quarantine, thereby making them unable to spend the holidays with their loved ones. This could result in exchange students, as well as international students on their own accord, having enormous problems in a country in which they have fewer rights and might not know about all of the resources at their disposal. Just like students that come from outside of the Capital Region are not pleased with being stuck in Reykjavík due to their final exams, international students do not like there being a whole sea between them and everyone and everything that they know. This semester has not at all been normal, so it makes no sense for these final exams to be carried out in the normal fashion. We urge the University of Iceland to rethink their decisions regarding final exams and keep the interests of this often-forgotten group in mind. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hagsmunir stúdenta Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Akranes hefur vaxið hratt – nú er tími til að hlúa að fólkinu Liv Åse Skarstad Skoðun Er íslenskan sjálfsagt mál? Logi Einarsson Skoðun Tala aldrei um annað en vextina Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þegar ráðin eru einföld – en raunveruleikinn ekki Karen Einarsdóttir Skoðun Er kominn skrekkur í fullorðna fólkið? Steinar Bragi Sigurjónsson Skoðun Stefán Einar og helfarirnar Hjálmtýr Heiðdal Skoðun 109 milljarða kostnaður sem fyrirtækin greiða ekki Sigurpáll Ingibergsson Skoðun Hver ákveður hver tilheyrir – og hvenær? Jasmina Vajzović Skoðun 96,7 prósent spila án vandkvæða Sigurður G. Guðjónsson Skoðun Þeytivinda í sundlaugina og börnin að heiman Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sameining Almenna og Lífsverks Jón Ævar Pálmason skrifar Skoðun Hvenær verður aðgerðaleysi að refsiverðu broti? Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Leikskólagjöld áfram lægst í Mosfellsbæ Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Lovísa Jónsdóttir skrifar Skoðun Nýja vaxtaviðmiðið: Lausn eða gildra fyrir heimilin? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Snorri, þú færð ekki að segja „Great Replacement“ og þykjast saklaus Ian McDonald skrifar Skoðun Frelsi til að taka góðar skipulagsákvarðanir Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Með eða á móti neyðarkalli? Helga Birgisdóttir skrifar Skoðun Þegar ráðin eru einföld – en raunveruleikinn ekki Karen Einarsdóttir skrifar Skoðun Er kominn skrekkur í fullorðna fólkið? Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Húsnæði fyrir fólk en ekki fjárfesta Hilmar Harðarson skrifar Skoðun Manstu eftir Nagorno-Karabakh? Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun 96,7 prósent spila án vandkvæða Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Smiðurinn, spegillinn og brunarústirnar Davíð Bergmann skrifar Skoðun 109 milljarða kostnaður sem fyrirtækin greiða ekki Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Hver ákveður hver tilheyrir – og hvenær? Jasmina Vajzović skrifar Skoðun Er íslenskan sjálfsagt mál? Logi Einarsson skrifar Skoðun Stafræn sjálfstæðisbarátta Íslands á 21. öldinni. Tungan, sagan og menningin undir Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Tala aldrei um annað en vextina Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Akranes hefur vaxið hratt – nú er tími til að hlúa að fólkinu Liv Åse Skarstad skrifar Skoðun Þeytivinda í sundlaugina og börnin að heiman Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Enga skammsýni í skammdeginu Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Þegar barn verður fyrir kynferðisofbeldi Indíana Rós Ægisdóttir skrifar Skoðun Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar – fyrir alla! Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Stefán Einar og helfarirnar Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Bréf til varnar Hamlet eftir Kolfinnu Nikulásdóttur Björg Steinunn Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skaðabótalög – tímabærar breytingar Styrmir Gunnarsson,Sveinbjörn Claessen skrifar Skoðun Hvers vegna? Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Fúsk við mannvirkjagerð þarf ekki að viðgangast Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Reykjalundur á tímamótum Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Bættar samgöngur og betra samfélag í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Sjá meira
Skoðun Leikskólagjöld áfram lægst í Mosfellsbæ Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Lovísa Jónsdóttir skrifar
Skoðun Stafræn sjálfstæðisbarátta Íslands á 21. öldinni. Tungan, sagan og menningin undir Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar