Hafna fréttum um að Pútín ætli að hætta Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 6. nóvember 2020 12:00 Vladímír Pútín, forseti Rússlands. AP/Alexei Druzhinin
Dmítrí Peskov, upplýsingafulltrúi Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta, hafnaði í dag frétt breska götublaðsins The Sun um að forsetinn þaulsetni ætlaði sér að láta af störfum eftir áramót af heilsufarsástæðum. Alina Kabaeva, sem sögð er ástkona forsetans, hefur samkvæmt breska blaðinu krafið Pútín um að hætta vegna áhyggja af því að hann sé með Parkinsonsveiki. Þá er eftirlitsfólk, sem er ekki nefnt á nafn, sagt halda því fram að nýlegt myndefni af forsetanum sýni að hann sé með einkenni sjúkdómsins. Peskov sagði fréttina fáránlega, að því er ríkismiðillinn TASS greinir frá. Hann sé við hestaheilsu. „Þessi frétt er ekki svaraverð. Þetta er algjör vitleysa. Forsetinn er hress,“ sagði upplýsingafulltrúinn. Pútín hefur gegnt embætti Rússlandsforseta frá árinu 2012, gerði það sömuleiðis á milli áranna 1999 og 2008 og var forsætisráðherra í millitíðinni. Í júlí tóku gildi stjórnarskrárbreytingar sem gera honum meðal annars kleyft að sitja til ársins 2036, að því gefnu að hann nái endurkjöri. Það hefur hingað til ekki reynst vandamál en forsetinn hefur ítrekað verið sakaður um kosningasvindl.
Rússland Mest lesið Sigríður Björk segir af sér Innlent Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Innlent Heldur fullum launum Innlent Ósammála lækni og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Innlent Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Innlent Flestum þykir Guðrún og Sigmundur hafa staðið sig illa Innlent Sögð ætla að leita á náðir Trumps Erlent Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Erlent Rússar nýta samsæriskenningar til að réttlæta innrásina í Úkraínu Innlent Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Erlent Fleiri fréttir Sögð ætla að leita á náðir Trumps Skaut hreingerningakonu sem fór húsavillt Mótmæli gegn loftmengun í Nýju-Delí: „Ég sakna þess að anda“ Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Forstöðumaður BBC segir af sér vegna misvísandi umfjöllunar Saka Rússa um að ógna kjarnorkuöryggi í Evrópu Bretlandsher aðstoðar Belga vegna drónaflugs Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre „Samlokumaðurinn“ sýknaður Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Sjá meira