Urgur meðal presta vegna hins umdeilda Trans-Jesú þjóðkirkjunnar Jakob Bjarnar skrifar 7. september 2020 10:26 Séra Skúli telur að standa eigi öðru vísi að kynningarmálum innan Þjóðkirkjunnar, án þess að valda slíkum úlfaþyt og Trans-Jesús hefur gert. Biskupinn yfir Íslandi, Agnes M. Sigurðardóttir, hefur enn ekki tjáð sig um málið.
Kynningarefni þjóðkirkjunnar um Sunnudagaskólann, þar sem sjá má mynd af Jesús Kristi, stíga dans undir regnboga, skeggjaður en með brjóst – Trans-Jesú – hefur reynst afar umdeilt og sér ekki fyrir endann á því. Prestar hafa fram til þessa verið þöglir um þessa framsetningu en í dag stígur Séra Skúli Sigurður Ólafsson fram með grein á Vísi sem ber yfirskriftina: „Flugdrekaheilkennið“. Séra Skúla er ekki skemmt. Steríótýpísk teikning „Ég skil ekki enn af hverju þau birtu þessa mynd af Jesú með varalit og brjóst á auglýsingum fyrir barnastarf kirkjunnar. Markhópur barnastarfsins kallaði vart eftir slíku og ég sé ekki að hinsegin fólki sé hér einhver greiði gerður. Teikningin sýnir stereótýpu sem ég held að fáir tengi við auk þess sem hugmyndin virkar yfirborðsleg,“ segir Séra Skúli í upphafi greinar sinnar. Hann spyr hvað sé með þessa mynd að gera? „Í sumar baðst biskup afsökunar á framgöngu kirkjunnar í garð samkynhneigðra. Full ástæða var til þess enda var einkar illa staðið að þeim málum á sínum tíma. Áfram hefði mátt vinna að samtali þjóðkirkju og hinsegin fólks án þess að færa viðkvæm málefni í þennan búning.“ Kallar eftir breyttu verklagi hjá þjóðkirkjunni Séra Skúli áttar sig engan veginn á því hvaða tilgangi það á að þjóna að stilla fram þessum Trans-Jesú, hann telur að hægt hefði verið að ná fram markmiðinu, að vekja athygli á Sunnudagsskólanum án þess að valda þeim úlfaþyt sem orðið hefur. „Ég kalla eftir breyttu verklagi í kynningarmálum þjóðkirkjunnar. Höfum hugfast að þjóðkirkja er ekki smáhópur heldur breiðfylking fólks og taka þarf tillit til margs konar sjónarmiða.“ Pétur Markan samskiptastjóri sagði á laugardaginn, í samtali við fréttastofu, að viðbrögðin væru samkvæmt væntingum. Einhverjir fagna og aðrir eru reiðir. En um helgina hafa fjölmargir fordæmt framsetninguna. Jón Magnússon lögmaður hefur skrifað harðorðan pistil á bloggsíðu sína, þar sem hann fordæmir þessa mynd sem dregin er upp af Jesú. Annar sem ekki er sáttur er Gunnar Þorsteinsson sem eitt sinn fór fyrir Krossinum. Hann fordæmir þetta uppátæki afdráttarlaust. Og þannig má lengi áfram telja, víst er að Trans-Jesú fer verulega fyrir brjóstið á mörgum manninum, ekki síst þeim sem heita mega kirkjuræknir. Það er auglýsingastofan Aldeilis sem vann kynningarefnið fyrir Þjóðkirkjuna og má með sanni segja að hún standi undir nafni. Ekkert vantar upp á að fólki þyki þetta aldeilis. Á Facebooksíðu sinni greinir auglýsingastofan frá því að þau séu stolt af verki sínu, myndheimi fyrir kirkjuna, og ánægð með skemmtilegt samstarf. „Fylgist með í næstu viku þegar myndheimurinn birtist á götum borgarinnar,“ segir þar. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að sama kynningarefni verði sýnilegt á strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu. Pink Washing af verstu sort Athugasemdir undir færslu Aldeilis mega heita lýsandi fyrir það í hvaða horn afstaðan skiptist. „Þetta er æði,“ segir Sigurbjörg Alfonsdóttir meðan Gréta Jónsdóttir segir þetta „sorglegt og skömm að þessu!“ Marion Bergmann Jónsson telur þetta snilld, hann vill sjá meira af svo góðu og Svava Bjarnadóttir lofar auglýsingastofuna og segir þau „aldeilis frábær“. Bergur Þ. Gunnarþórsson setur fram athyglisvert sjónarmið, ekki er víst að þessi framsetning sé þóknanleg þeim sem reynt er að höfða til. Hann vitnar í vinkonu sem segir: „Að vera trans eða intersex er ekki einhver búningur sem þú getur sett vörumerkið/talsmanninn í eftir hentisemi’ þið farið yfir öll velsæmismörk her, móðgið hinsegin samfélagið, munu karlprestar landsins taka á móti sunnudagaskólabörnunum í fullu dragi á morgun og gera RuPaul stoltan? Það er nóg að Biskup biðji okkur afsökunar þetta hér er Pink Washing af verstu sort!“ Þetta eru einmitt vangaveltur sem Alexandra Briem varaborgarfulltrúi setur fram á Facebooksíðu sinni: „Þó ég virði það viðlit að breyta mascot characternum sínum (á hátt sem minnir á Buddy Jesus úr myndinni Dogma) til að senda skilaboð um breytt viðhorf kirkjunnar og meiri móttækileika, þá finnst mér það eitthvað skrítið að breyta kyni og kynvitund manneskju sem hefur ekkert um það að segja sjálf. Ekkert í sjálfu sér skárra en ef Jesús hefði verið trans maður og einhver hefði ákveðið að tala um hann sem konu.“
Hinsegin Þjóðkirkjan Samfélagsmiðlar Trúmál Tengdar fréttir Flugdrekaheilkennið Nokkur orð um trans-Jesú 7. september 2020 10:00 Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Fleiri fréttir Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Sjá meira