Hamilton nálgast met Schumacher eftir sigur dagsins Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. júlí 2020 22:30 Hamilton sendi skýr skilaboð er hann fagnaði sigri dagsins. Vísir/Sky Sports
Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í Formúlu 1 kappakstri helgarinnar. Ekki í fyrsta skipti sem Hamilton ber sigur úr býtum og eflaust ekki það síðasta. Hamilton og Mercedes halda áfram frá því sem var horfið undanfarin ár en Bretinn nálgast óðfluga met goðsagnarinnar Michael Schumacher. Hamilton - sem er sexfaldur heimsmeistari - þarf aðeins sex sigra til viðbótar og þá hefur hann jafnað Þjóðverjann sem vann á sínum tíma 91 Formúlu 1 kappakstur. We stand together the team today took the knee which was just amazing to see that together we can learn and be open minded of what s going on in the world. Thank you to everyone in my team and to you #TeamLH, I appreciate all of your support and your positive messages pic.twitter.com/zfKGdjDjce— Lewis Hamilton (@LewisHamilton) July 12, 2020 Ferrari gat vart byrjað tímabilið verr en ökumenn liðsins, Sebastian Vettel og Charles Leclerc, rákust saman á fyrsta hring og gátu ekki haldið áfram. „Ég er mjög þakklátur fyrir að vera kominn aftur í fyrsta sæti,“ sagði Hamilton er hann fagnaði sigri á mótinu og steytti hnefa upp í loft. Ekki nóg með að Hamilton hafi komið fyrstur þá var samherji hans hjá Mercedes, Valtteri Bottas, í öðru sæti. Þar á eftir komu Max Verstappen og Alex Albon, báðir hjá Red Bull.
Formúla Mest lesið „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Enski boltinn Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Sport Drama í skíðagöngu Dags: Stytti sér leið en fékk samt silfur Sport Lindsey Vonn úr leik eftir hrikalegt fall í fyrstu ferð Sport Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Sport Minningarleikur um strákinn sem lést í bílslysi á Miklubraut: „Fyllum höllina - fyrir Patta“ Sport Trump kallar keppanda Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum „algjöran lúser“ Sport Uppgjör: Afturelding-Valur 27-35 | Arnór með stórleik í stórsigri Handbolti Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira