Golf

Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn

Andri Broddason skrifar
Óliver Elí var valinn í lið Evrópu eftir sigurinn á Opna breska áhugamannamóti pilta um helgina.
Óliver Elí var valinn í lið Evrópu eftir sigurinn á Opna breska áhugamannamóti pilta um helgina. R&A

Óliver Elí Björnsson mun leika á Jacques Légalise Trohpy-mótinu sem er ein stærsta liðakeppni í heiminum fyrir kylfinga yngri en 18 ára.

Mikið hefur gerst á síðustu dögum fyrir Óliver Elí en hann vann eitt stærsta áhugamannamót fyrir kylfinga yngri en átján ára. Eftir sigurinn hefur Óliver Elí verið valinn á Jacques Légalise Trophy-mótið.

Þar mætast kylfingar frá Bretlandi og Írlandi gegn sameiginlegu liði Evrópu. Óliver Elí mun vera hluti af Evrópuliðinu en mótið fer fram 21.-22. ágúst. Mótið er haldið á hverju ári og í ár verður leikið á The Island Golf Club á Írlandi.

Jon Rahm, Tommy Fleetwood og Justin Rose eru einungis nokkrir af þeim fjölmörgu atvinnumönnum sem hafa tekið þátt á þessu móti. Óliver Elí verður annar Íslendingurinn til að keppa á þessu móti en Gísli Sveinbergsson var valinn á mótið árið 2015.

Óliver Elí fær aðeins nokkurra daga pásu en hann er nýkominn heim eftir sigurinn á Opna breska áhugamannamóti pilta. Hann getur haldið áfram að spreyta sig gegn sterkustu kylfingum heims undir átján ára aldri og vonandi nær hann að tengja saman tvo sigra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×