Formúla 1

Sjáðu á­rekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Bíll Russell var óökuhæfur en Hamilton brunaði burt.
Bíll Russell var óökuhæfur en Hamilton brunaði burt. formula 1

Lewis Hamilton hjá Ferrari og George Russell hjá Mercedes lentu í árekstri á fyrsta hring Formúlu 1 kappakstursins í Spa í Belgíu.

Fyrrum liðsfélagarnir hjá Mercedes klesstu saman í fimmtu beygju Spa brautarinnar.

Hamilton hafði náð að bruna fram úr liðsfélaga sínum hjá Ferrari, Charles Leclerc, strax í upphafi keppninnar og taka fjórða sætið.

Þá rakst Hamilton í afturhjólið á bíl Russell, sem var í þriðja sæti en snerist út af brautinni.

Russell gat ekki haldið áfram keppni. Bíll Hamilton slapp heill en hann fékk fimm sekúndna refsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×