Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Stefán Árni Pálsson skrifar 4. september 2026 17:16 Bragi Þórðarson er sérfræðingur í Formúlunni en hann lýsir Monzunni á Sýn Sport Viaplay alla helgina. Kimi Antonelli, forystusauður stigakeppni ökuþóra, mun ræsa aftastur á heimavelli í Formúlu 1-keppni helgarinnar eftir að hafa fengið á sig refsingu. Refsinguna fær hann eftir að skipta þurfti um vélarbúnað í bíl hans fyrir komandi keppnishelgi á Monza.
Refsingin verður það mikil að hann fellur sjálfkrafa aftast á ráslínuna, óháð því hvernig honum gengur í tímatökunni. Það er sérstaklega sárt fyrir hinn 20 ára gamla Antonelli þar sem ítalski kappaksturinn í Monza er hans heimakappakstur. „Hann er að skipta um mótor og allt í rauninni í vélasalnum. Það er náttúrulega með þessum nýju reglum að þá erum við að sjá mun fleiri bilanir og fleira af mótorum og rafmagnsbúnaðinum þar í kring. Þannig er þetta reglum samkvæmt ef þú skiptir um, ef þetta væri bara sprengihreyfillinn væri þetta kannski fimm sæta refsing á ráslínu eða eitthvað svoleiðis. En út úr því að skipta um allt heila klabbið þá mun hann bara ræsa aftastur í heimakeppninni, alveg sama hvar hann endar í tímatökum,“ segir Bragi Þórðarson, Formúlu sérfræðingur Sýnar Sports, um umrædda refsingu. En vissi hann af þessari refsingu áður en liðið fór í þessar aðgerðir? „Þetta er í rauninni strategískt hjá Mercedes að gera þetta á braut eins og Monza, sem er tiltölulega auðvelt að taka fram úr og þar er mikið af beinum köflum að vera með ferskan mótor, þú græðir alveg svolítið á því þannig að hann verður hraðari fyrir vikið. En það verður áhugavert að sjá hvað hann getur gert úr 22. sæti á ráslínu.“ Bragi vill meina að Antonelli eigi samt sem áður séns í að taka keppnina. „Auðvitað, en líkurnar fóru ansi mikið niður út af þessu. Ég svona spái honum í mögulega topp fimm, eitthvað svoleiðis. En ég meina, við höfum séð ökumenn gera þetta. Eftirminnilega árið 2021 gerði Lewis Hamilton þetta í Brasilíu, tók nýjan mótor með því og ræsti aftastur bæði í sprettkeppni og alvöru keppninni og endaði á að vinna Max Verstappen í þeirri keppni, þannig að það verður áhugavert á sunnudaginn hvernig þetta fer.“ Klippa: Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu
Akstursíþróttir Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Sjá meira