Formúla 1

Fór á skeljarnar í sumar­fríinu

Andri Broddason skrifar
George Russell er í þriðja sæti heimsmeistaramótsins í Formúlu 1.
George Russell er í þriðja sæti heimsmeistaramótsins í Formúlu 1. Mark Sutton/Getty

Breski ökuþórinn George Russell nýtti sumarfríið í Formúlu 1 vel og trúlofaðist í sumarfríinu. Tímabilið í Formúlu 1 mun hefjast aftur í lok mánaðar og er George Russell í harðri toppbaráttu.

Um mitt sumar er ávallt gefið mánaðarfrí á tímabilinu í Formúlu 1 og hafa ökumenn nýtt það til að endurhlaða batteríin fyrir seinni hluta tímabilsins. George Russell ákvað að fara á skeljarnar í sínu sumarfríi og trúlofaðist Carmen Mundt.

Verðandi eiginkona hans er spænskur viðskiptafræðingur og hefur unnið sem fjárfestir og talað sterklega um að bæta fjármálalæsi kvenna. Þau kynntust árið 2020 og hafa verið nánast óaðskiljanleg síðan.

George Russell er ökumaður Mercedes í Formúlu 1 þar sem hann stendur í þriðja sæti heimsmeistaramótsins. Liðsfélagi hans, Kimi Antonelli, er í efsta sæti en 59 stig skilja þá að. Lewis Hamilton, ökumaður Ferrari, er í öðru sætinu níu stigum á undan Russell.

Mercedes bifreiðin hefur verið hröðust það sem af er tímabils en bilanir og óheppilegir árekstrar hafa sett strik í reikninginn. Tólf keppnir eru eftir og því ýmislegt sem getur gerst það sem eftir er tímabils. Einnig verður fróðlegt að sjá hvaða uppfærslur liðin koma með fyrir bílana eftir sumarfríið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×