Hlutfall starfandi á vinnumarkaði ekki verið lægra síðan 2003 Atli Ísleifsson skrifar 28. maí 2020 10:20 Atvinnuleysi í landinu mældist sjö prósent í apríl og hafa hlutfall starfandi ekki verið lægra síðan 2003. Vísir/Vilhelm
Atvinnuleysi í landinu mældist sjö prósent í apríl og hafa hlutfall starfandi ekki verið lægra síðan 2003. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar, en ljóst má vera að áhrif heimsfaraldurs kórónuveirunnar á íslenskan vinnumarkað var greinilega farið að gæta í apríl. Óleiðréttar unnar vinnustundir hafa aldrei mælst færri Samkvæmt óleiðréttri mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar er áætlað að um 195.000 (± 6.300) manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í apríl 2020. Jafngildi það 75,8 prósent (±2,4) atvinnuþátttöku. „Af vinnuaflinu er áætlað að um 181.200 (±4.600) manns hafi verið starfandi, en 13.700 (±2.800) án vinnu og í atvinnuleit. Áætlað hlutfall starfandi af mannfjölda var 70,5% (±2,5) á meðan óleiðrétt atvinnuleysi mældist 7,0% (±1,4),“ segir í fréttinni. Óleiðréttar unnar vinnustundir hafa aldrei mælst færri í sögu samfelldrar vinnumarkaðsrannsóknar frá 2003 eða um 34,8 stundir. Áhrif Covid-19 greinileg „Hið sama á við um mælingar á atvinnuþátttöku og hlutfalli starfandi sem hafa aldrei verið lægri síðan 2003. Þegar á heildina er litið eru áhrif Covid-19 á íslenskan vinnumarkað því greinileg í apríl. Óleiðréttar mælingar benda til þess að fjöldi utan vinnumarkaðar hafi aukist í apríl um leið og atvinnuleysi jókst og unnum stundum fækkaði. Samanburður við apríl 2019 leiðir í ljós að atvinnuleysi hefur aukist um 3 prósentustig milli ára en hlutfall starfandi lækkað um 8,8 prósentustig og atvinnuþátttaka um 6,8 prósentustig,“ segir í fréttinni. Nánar má lesa um rannsóknina á vef Hagstofunnar.
Vinnumarkaður Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu Sjá meira