Heimsmeistarinn hneykslaður yfir því að ástralski kappaksturinn fari fram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2020 08:30 Lewis Hamilton á blaðamannafundinum í Melbourne í morgun en þar fer ástralski kappaksturrinn í formúlu eitt fram um helgina. Getty/Clive Mason
Lewis Hamilton segir það koma sér mikið á óvart að formúla eitt hafi ekki frestað ástralska kappakstrinum sem á að fara fram um helgina. Kórónuveiran er að hafa mikil áhrif á flest alla íþróttaviðburði í heiminum og nú síðast frestaði NBA-deildin öllu tímabilinu sínu. Formúla eitt ætlar samt að setja tímabilið sitt af stað um komandi helgi. Lewis Hamilton er einn af þeim sem er hneykslaður á þeirri ákvörðun að keppa um helgina þegar heimsfaraldur eins og kórónuveiran ógnar öllum á jörðinni. Lewis Hamilton er sexfaldur heimsmeistari og getur unnið sinn fjórða heimsmeistaratitil í röð á komandi tímabili. Lewis Hamilton says it is "shocking" that the Australian Grand Prix is going ahead despite the global coronavirus pandemic.More: https://t.co/lOI1gqdHBg pic.twitter.com/GLiSZxUnrM— BBC Sport (@BBCSport) March 12, 2020 „Ég er mjög, mjög hissa á því að við séum hérna núna,“ sagði Lewis Hamilton á blaðamannafundi sínum fyrir keppnina. „Það er frábært að við séum að keppa í kappakstri en það er sjokkerandi að við séum í þessu herbergi,“ sagði Hamilton. Fimm starfsmenn í formúlu eitt hafa verið settir í sóttkví vegna þess að menn óttast það að þeir séu með kórónuveiruna. „Það eru svo margir áhorfendur hér og það lítur út fyrir að restin af heiminum sé að bregðast við þessu þó að það sé aðeins of seint. Við erum samt að sjá Trump loka landamærunum og NBA deildin hefur frestað öllum leikjum en samt heldur formúlan áfram,“ sagði Hamilton. „Þetta er stór ákvörðun en ég heyrði að niðurstaðan úr sýnatökunni komi ekki fyrr en eftir fimm daga,“ sagði Hamilton sem var síðan spurður út í það af hverju hann héldu að formúlu helgarinnar hafi ekki verið frestað. „Peningarnir eru kóngurinn,“ svaraði Lewis Hamilton og bætti við: „Ég hvet bara alla að fara eins varlega og þau geta. Ég vona að allir séu með sótthreinsandi vökva með sér.“
Formúla Mest lesið „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Enski boltinn Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Sport Drama í skíðagöngu Dags: Stytti sér leið en fékk samt silfur Sport Lindsey Vonn úr leik eftir hrikalegt fall í fyrstu ferð Sport Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Trump kallar keppanda Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum „algjöran lúser“ Sport Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Sport Minningarleikur um strákinn sem lést í bílslysi á Miklubraut: „Fyllum höllina - fyrir Patta“ Sport Uppgjör: Afturelding-Valur 27-35 | Arnór með stórleik í stórsigri Handbolti Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira