Vetrarlegt á Norðausturlandi en bjart og fallegt suðvestantil Atli Ísleifsson skrifar 8. maí 2020 07:20 Spákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 14 í dag, líkt og það leit út klukkan 7 í morgun. Veðurstofan
Veðurstofan spáir að víða verði norðan og norðaustan vindur, 5 til 13 metrar á sekúndu, í dag. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði heldur vetrarlegt um að litast á norðaustanverðu landinu, en þar verði éljagangur fram eftir degi, og hitinn nálægt frostmarki. „Það verður hins vegar bjart og fallegt veður á suðvestur- og vesturlandi, og hiti á bilinu 4 til 9 stig yfir hádaginn. Síðdegis þykknar upp syðst á landinu með skúrum eða éljum, en jafnframt styttir upp að mestu fyrir norðan. Víða hæg norðlæg átt á morgun. Skýjað með köflum og stöku él um landið norðan- og austanvert, en áfram bjart vestantil. Snýst í suðlæga átt undir kvöld og léttir til norðanlands.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Hæg norðlæg átt og bjartviðri, en 5-10 m/s og stöku él um landið SA- og A-vert. Suðlægari síðdegis og þykknar upp með dálitlum skúrum SV-lands. Hiti um og undir frostmarki norðaustantil, en 3 til 8 stig á Suður- og Vesturlandi að deginum. Á sunnudag: Vestan og suðvestan 5-13 m/s. Skýjað með köflum um landið vestanvert, en víða bjartviðri austantil. Hlýnandi, hiti 4 til 9 stig síðdegis. Þykknar upp með dálitlum skúrum eða éljum við N-ströndina um kvöldið. Á mánudag: Suðvestlæg eða breytileg átt, skýjað og víða líkur á lítilsháttar vætu, en dálítil él NA-til. Hiti 4 til 9 stig, en nálægt frostmarki um landið NA-vert. Á þriðjudag: Suðvestan gola og víða dálítil rigning eða súld, en þurrt að kalla A-lands. Hiti 3 til 9 stig að deginum. Á miðvikudag: Suðvestlæg átt og skúrir S- og V-til, en bjart að mestu eystra. Milt í veðri. Á fimmtudag: Útlit fyrir fyrir suðvestanátt með lítilsháttar vætu um mest allt land.
Veður Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Innlent Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Sigríður Ingibjörg ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB Innlent Fleiri fréttir Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð Sjá meira