Framkvæmdastjóri hjá Goldman Sachs tilnefndur í embætti varaseðlabankastjóra Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. desember 2019 17:20 Seðlabankinn. Vísir/vilhelm
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur tilnefnt Gunnar Jakobsson í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Forsætisráðherra skipar í embættið. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra auglýsti 3. október 2019 eftir varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Bjarni Benediktsson, fjármála-og efnahagsráðherra, skipaði þriggja manna hæfnisnefnd til að fjalla um hæfni umsækjendanna og lauk hún störfum sl. mánudag að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Niðurstaða hæfnisnefndarinnar var að meta fimm umsækjendur mjög vel hæfa til að gegna embættinu. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur nú farið yfir gögn málsins, niðurstöður hæfnisnefndarinnar og tekið viðtöl við þá fimm einstaklinga sem nefndin mat mjög vel hæfa. Að loknu heildarmati hefur ráðherra ákveðið að tilnefna Gunnar Jakobsson í embættið. Í nýjum lögum um Seðlabanka Íslands, sem taka gildi um áramótin, er forsætisráðherra falið að skipa bæði seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika og varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits skulu þó skipaðir að fenginni tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra. Gunnar Jakobsson er lögfræðingur að mennt, með MBA próf frá Yale og hefur undanfarin ár gegnt stjórnunarstöðum hjá Goldman Sachs, fyrst í New York og nú síðast sem framkvæmdastjóri lausafjársviðs og persónuverndar Goldman Sachs International í London.
Seðlabankinn Vistaskipti Mest lesið Húrra dregur saman seglin Viðskipti innlent „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Innleiða gervigreindina í MS Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Sjá meira