Von á hríðarveðri þar sem innviðir hafa ekki jafnað sig eftir aftakaveðrið Eiður Þór Árnason skrifar 18. desember 2019 22:44 Stutt er frá síðustu veðurviðvörun Veðurstofunnar. Skjáskot/Veðurstofan
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirði, Suðausturland og Miðhálendi. Viðvaranirnar byrja að taka gildi eftir hádegi á morgun og gilda víða fram á föstudagsmorgun. Er til að mynda spáð norðaustan hvassviðri eða stormi, 15 til 25 metrum á sekúndu á Suðausturlandi og Miðhálendi. Þá er spáð allhvassri norðaustanátt 13 til 18 metrum á sekúndu með éljum eða snjókomu og mögulega skafrenningi á Norðurlandi eystra og Austurlandi. Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni, segir þetta kannski vera óvenjulítinn vind fyrir viðvörun en segir að stuttur tími frá síðasta óveðri á þessu svæði hafi áhrif. „Það mun fylgja ofankoma á þessu svæði og innviðirnir eru kannski ekki endilega búnir að jafna sig eftir veðrið í síðustu viku, þannig að svona hríðarveður kemur ofan í kannski ekkert glæsilegt ástand.“ Þá muni það að öllum líkindum hafa áhrif á færð á vegum að það er nú þegar víða mikill snjór. „Það er ekki bara úrkoman sem slík heldur er það kannski aðallega að það er töluverður fyrri snjór sem er að spila inn í.“ Fólk á Norðurlandi, Austfjörðum og Miðhálendi þar sem hríðarviðvörun verður í gildi er beðið um að fylgjast vel með veðurspá og upplýsingum frá Vegagerðinni um færð á vegum á meðan gula viðvörunin er í gildi. Fólk á Suðausturlandi einnig beðið um að fara varlega og hugsa sig tvisvar um áður en það keyrir undir Öræfajökli þar sem hviður gætu náð 35 metrum á sekúndu. Það á sérstaklega við um stór ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Veður Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira