Hótaði að brjóta hausinn á karlmanni með hamri Eiður Þór Árnason skrifar 2. september 2019 19:00 Héraðsdómur Reykjavíkur Vísir/Vilhelm
Héraðsaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur tveimur karlmönnum á þrítugsaldri fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og hótanir gagnvart öðrum karlmanni. Atvikið átti sér stað í Grafarvogi í júlí 2017. Hinir ákærðu eru sakaðir um að hafa frelsissvipt manninn í minnst fjórar til sex klukkustundir með því að veitast að honum með ofbeldi, hótunum og neyða hann upp í bifreið sína. Hinir grunuðu eru sakaðir um að hafa ekið með brotaþola um höfuðborgarsvæðið og stoppað á þremur stöðum áður en mennirnir fóru með hann heim til sín. Þar er annar maðurinn sagður hafa snúið fórnarlambið niður, haldið honum niðri, slegið og kýlt ítrekað í andlit, ásamt því að hafa sparkað í afturenda hans. Hinum manninum er gert að hafa ógnað fórnarlambinu með hamri og hótað að brjóta á honum hausinn ef hann færi ekki inn í bifreiðina. Á meðan bílferðinni stóð er hann einnig sakaður um að hafa slegið og kýlt brotaþola, rifið í hár hans, tekið hann margsinnis hálstaki svo hann átti erfitt með andardrátt og hótað að drepa hann. Héraðssaksóknari fer fram á að mennirnir verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Brotaþoli fer fram á tvær og hálfa milljón í miskabætur. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun, þann 3. september.
Dómsmál Reykjavík Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Sjá meira