Verstappen vann magnaðan sigur í Austurríki Bragi Þórðarson skrifar 1. júlí 2019 20:30 Fjöldinn allur af Hollendingum lögðu leið sína til Austurríkis til að styðja við sinn mann, Max Verstappen. Vísir/Getty
Níunda umferðin í Formúlu 1 fór fram á Red Bull brautinni í Austurríki um helgina. Mercedes hefur verið alls ráðandi þetta tímabil en sigurgöngu liðsins lauk um helgina. Ríkjandi heimsmeistarinn, Lewis Hamilton, náði næstbesta tíma í tímatökum en fékk refsingu fyrir að hindra annan bíl. Fyrir vikið byrjaði hann fjórði á eftir liðsfélaga sínum Valtteri Bottas. Á fremstu röð voru Charles Leclerc á Ferrari og Max Verstappen á Red Bull. Báðir eru þeir aðeins 21 árs, aldrei í sögu Formúlu 1 hefur meðalaldurinn á fremstu röð verið jafn lár. Mikil pressa var á Verstappen, liðið var á heimavelli og nánast allir áhorfendur voru hollendingar klæddir appelsínugulu að styðja Max. Hræðileg byrjun VerstappenMikil spenna var í upphafi kappakstursins í hitanum í Austurríki.GettyKeppnin byrjaði hræðilega fyrir Hollendinginn er hann tapaði sjö sætum strax í ræsingu og var dottinn niður fyrir liðsfélaga sinn, Pierre Gasly. Verstappen vann sig þó jafnt og þétt upp listann og á 50. hring tók hann fram úr Vettel, og sex hringjum seinna framúr Bottas. Þá var Max kominn upp í annað sætið, tæpum sex sekúndum á eftir Leclerc og 5 hringir eftir. Á 68. hring af 71 var Verstappen komin innan við sekúndu á eftir Charles, sem þýddi að Hollendingurinn gat nýtt sér DRS búnaðinn til framúraksturs. Í þriðju beygju komst hann inn fyrir Ferrari ökuþórinn en Leclerc hélt betri línu í fjórðu beygju og hélt forustunni. Strax á næsta hring komst Max í sömu stöðu í beygju þrjú. Núna gaf hann keppinaut sínum minna pláss í ytri línunni og komst framúr. Hollensku áhorfendurnir gjörsamlega trylltust við að sjá hetjuna sína komast upp í fyrsta sætið úr því áttunda í byrjun kappakstursins. Verstappen kláraði síðasta hringinn af miklu öryggi og stóð uppi sem sigurvegari eftir magnaðann akstur. Sigurinn kom á heimavelli Red Bull og má vægast sagt segja að liðið hafi verið í skýjunum. Dómarar lengi að ákveða sigCharles Leclerc og Max Verstappen fæddust með sextán daga millibili árið 1997.GettyLeclerc var allt annað en sáttur við aksturlag Verstappen og dómarar virtust sammála og tóku atvikið fyrir. Heilum þremur klukkutímum eftir að flaggið féll kom lokaniðurstaða í málið. Dómarar dæmdu atvikið sem eðlilegt kappaksturs atvik og refsuðu Verstappen því ekkert. Ferrari unnu síðast í Austurríki árið 2003 með Michael Schumacher. Annað sæti Charles þýðir að ítalska liðið verður að bíða í að minnsta kosti eitt ár í viðbót eftir sigri þar í landi. Akstur Max á sunnudaginn var algjörlega magnaður, til að setja hraða Hollendingsins í samhengi hringaði hann liðsfélaga sinn á næstsíðasta hring. Verstappen keyrði því að meðaltali rúmlega einni sekúndu á hring hraðar en Pierre Gasly þótt ökumennirnir væru á nákvæmlega eins bílum. Red Bull liðið skipti yfir í Honda vélar fyrir tímabilið og var sigurinn sá fyrsti fyrir vélarframleiðandann síðan Jenson Button vann keppni fyrir Honda árið 2006. Mercedes loksins ekki í fyrsta sætiVerstappen tryggði Honda sinn fyrsta sigur í tæp þrettán ár.GettyÞetta var fyrsta keppnin í ár sem að Mercedes vinnur ekki og þurfti Valtteri Bottas að sætta sig við þriðja sætið. Hamilton varð fimmti eftir að hafa þurft að skipta um framvæng um miðbik keppninnar. Báðir Mercedes bílarnir voru í hitavandamálum. Ekki skrítið þar sem mikil hitabylgja er í Evrópu um þessar mundir og fór brautarhitinn á Red Bull brautinni mest upp í 60 gráður á celsíus. Úrslitin þýða að Max Verstappen hoppar upp í þriðja sæti heimsmeistaramótsins og Valtteri Bottas minnkar muninn í Hamilton niður í 31 stig. Næsta keppni fer fram á Silverstone brautinni í Bretlandi. Mörg lið hafa bækistöðvar sínar þar í landi og verður því mikið í húfi fyrir bæði lið og ökuþóra eftir tvær vikur.
Austurríki Formúla Tengdar fréttir Verstappen fyrstur í Austurríki en gæti fengið refsingu Max Verstappen fagnaði sigri í austurríska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag. Verstappen átti frábæran dag og vann annað árið í röð á heimavelli Red Bull. 30. júní 2019 14:47 Verstappen fékk staðfestan sigurinn eftir þriggja tíma bið Það voru læti í formúlu 1 kappakstrinum í dag. 30. júní 2019 18:04 Mest lesið Grænhöfðaeyjar grátlega nálægt því að senda heimsmeistarana heim Fótbolti Xhaka neitaði að fara til síns gamla þjálfara Fótbolti Átti Yamal skilið að vera maður leiksins? Fótbolti Jóhannes Karl: „Erum hérna til þess að sækja sigra“ Fótbolti Jón Þór Hauksson: „Með ólíkindum að við klárum ekki þennan leik“ Fótbolti Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Átta leikmenn Túnis féllu á lyfjaprófi Fótbolti Dómari útskýrir af hverju Messi slapp en Balogun fékk rautt Fótbolti Fjör á Seltjarnarnesi og Afturelding heldur toppsætinu Fótbolti Haaland útskýrir kossinn Fótbolti Fleiri fréttir Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring „Þetta hafa verið erfiðir mánuðir“ Fyrsti sigur Russell frá því í fyrstu keppni tímabilsins Russell náði ráspólnum á umdeildan hátt Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Allt í bál og brand í Formúlu 1 Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Fékk aftur verðlaunasæti í Formúlu 1 sex dögum eftir harða refsingu Segir styttast í fyrsta sigurinn Missti af verðlaunapalli og endaði í sjöunda sæti Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjötti af stað Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Sjá meira
Verstappen fyrstur í Austurríki en gæti fengið refsingu Max Verstappen fagnaði sigri í austurríska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag. Verstappen átti frábæran dag og vann annað árið í röð á heimavelli Red Bull. 30. júní 2019 14:47
Verstappen fékk staðfestan sigurinn eftir þriggja tíma bið Það voru læti í formúlu 1 kappakstrinum í dag. 30. júní 2019 18:04