Þingfundur hefur staðið yfir í tæpan sólarhring Kjartan Kjartansson skrifar 29. maí 2019 10:07 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson messar yfir félögum sínum í umræðum um þriðja orkupakkann í gær. Miðflokksmenn hafa skipst á að halda ræður og svara hver öðrum undanfarna daga. Vísir/Vilhelm
Umræður um þriðja orkupakkann standa enn yfir á Alþingi en þær hafa farið fram með örfáum hléum frá klukkan ellefu í gærdag. Sem fyrr hafa þingmenn Miðflokksins haldið uppi málþófi í alla nótt og langt fram á morgun. Þingfundur hófst klukkan hálf ellefu í gærmorgun um byrjaði umræðan um þriðja orkupakkann skömmu eftir klukkan ellefu. Hlé var gert á fundinum klukkan 12:55 en umræðan hélt áfram klukkan 13:30. Síðan þá hefur umræðan haldið áfram nær linnulaust. Klukkutíma hlé var gert á milli klukkan 19 og 20 og svo aftur í hálftíma á milli klukkan 21:15 og 21:45. Þingmenn Miðflokksins hafa haldið áfram að halda ræður og svara hver öðrum í alla nótt. Þingfundur stóð enn yfir þegar þessi frétt fór í loftið skömmu eftir klukkan tíu í morgun. Fordæmalaust er sagt að einn þingflokkur haldi upp málþófi af þessu tagi. Málþófið hefur nú staðið yfir í vel yfir hundrað klukkustundir, þar af í rúma tuttugu á fundinum sem nú stendur yfir. Fundað hefur verið langt fram á nætur og jafnvel morgna undanfarna daga. Þingfundi sem hófst klukkan 15:30 á föstudag var þannig ekki frestað fyrr en klukkan hálf ellefu á laugardag.
Alþingi Miðflokkurinn Þriðji orkupakkinn Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Hvar er Khamenei? Erlent Vill útbúa lista yfir íslenska hermenn í þágu varna Innlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin Erlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira