Yfir 17 stiga hiti í Reykjavík í dag Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. apríl 2019 17:58 Hitakortið núna klukkan 18 er alveg ágætt. veðurstofa íslands
Það hefur verið óvenju hlýtt víða um land í dag miðað við árstíma samkvæmt mælingum Veðurstofu Íslands og mældist til að mynda 17,1 gráða á sjálfvirku stöðinni við Veðurstofunnar í Reykjavík í dag. Teitur Arason, veðurfræðingur, segir að þar með sé líklega hitametið í Reykjavík fyrir aprílmánuð fallið en enn á eftir að yfirfara hitatölur dagsins. „Það hefur farið hæst í 19,3 á Þingvöllum, 19,2 í Skagafirði og 19 á Bíldudal þannig að þetta er nokkuð víða um land,“ segir Teitur í samtali við Vísi. Hann segir að tölurnar í veðurfarsyfirlitinu fyrir aprílmánuð verði mjög áhugaverðar. „Því þetta er sennilega hlýjasti aprílmánuður síðan mælingar hófust í Reykjavík og Stykkishólmi og mögulega jafnar hann meðalhitametið á Akureyri. Þetta er búið að vera mjög hlýr mánuður og þetta er eiginlega toppurinn á hlýindakaflanum dagurinn í dag. Síðan fer hitinn niður á við þegar það kemur kalt loft úr norðri,“ segir Teitur en hlýindin hófust þann 12. apríl síðastliðinn, föstudaginn fyrir pálmasunnudag. Teitur segir að veðrakerfin séu núna að skipta um gír og það verði ekki eins hlýtt næstu daga. Hitinn muni að öllum líkindum fara undir meðalhita árstímans og búast má við næturfrosti fyrir norðan og austan.
Veður Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Enn eitt innbrotið til rannsóknar Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Sjá meira