„Tvær heiðarlegar haustlægðir“ á leið til landsins Atli Ísleifsson skrifar 12. apríl 2019 08:10 Seinni partinn er útlit fyrir suðaustan hvassviðri eða storm, hvassast SV-lands, en heldur hægari vindur fyrir norðan. vísir/vilhelm „
Tvær heiðarlegar haustlægðir“ koma til landsins í dag og á morgun með hvassviðri eða stormi, rigningu og mildu veðri. Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Suður af landinu er að finna 980 millibara lægð sem stefnir norður og mun nú bæta í vindinn hér á Íslandi. „Seinni partinn er útlit fyrir suðaustan hvassviðri eða storm, hvassast SV-lands, en heldur hægari vindur fyrir norðan. Hviður undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, á norðanverðu Snæfellsnesi og víðar geta farið yfir 30 m/s. Með lægðinni fylgir talsverð rigning SA-lands, rigning með köflum um landið vestanvert fyrir hádegi og áfram að mestu bjart fyrir norðan. Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi og á Miðhálendinu.“ Útlit er fyrir milt veður eða jafnvel upp í 15 eða 16 stiga hita fyrir norðan í dag og á morgun og stefnir í að Skagafjörður verði hlýjasti staðurinn þó að ekki sé á vísan að róa með það, að því er fram kemur. „Næstu nótt dregur úr vindinum, en það er skammgóður vermir þar sem bætir aftur í suðaustanáttina á morgun og verður vindurinn ennþá öflugri en í dag. Annað kvöld stefnir í 18-25 m/s á S- og SV-verðu landinu. Áfram verður talsverð rigning á SA-verðu landinu, væta með köflum V-lands og þurrt fyrir norðan,“ segir á vef Veðurstofunnar.Veðurhorfur næstu dagaÁ laugardag: Vaxandi suðaustanátt, 15-25 m/s um kvöldið, hvassast S- og SV-til. Víða rigning um landið S-vert og jafnvel talsverð rigning á köflum, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 7 til 15 stig. Á sunnudag (pálmasunnudagur): Minnkandi suðlæg átt, 8-15 m/s um kvöldið. Rigning um landið S-vert, talsverð SA-til, en þurrt fyrir norðan. Hiti 5 til 10 stig. Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag (skírdagur): Suðlægar áttir og rigning með köflum, en að mestu þurrt norðanlands. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast fyrir norðan.
Veður Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira