Hvassviðri og ofankoma Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. mars 2019 08:00 Það mun blása hressilega á miðhálendinu og norðvestanverðu landinu í dag. Veðurstofan
Gular viðvaranir eru í gildi fyrir Breiðafjörð, Vestfirði, Norðurland vestra og Miðhálendið og munu þær vara fram á kvöld. Varað er við hvassviðri og éljagangi, með vindhviðum allt að 40 m/s, og þannig geti myndast varhugaverðar akstursaðstæður á þessum svæðum. Það sé því útlit fyrir suðvestan storm í dag, jafnvel rok um tíma norðvestantil á landinu. Einnig eru horfur á að úrkoma færi sig yfir í snjókomu eða él með kólnandi veðri og lélegu skyggni á köflum. Veðurfræðingur hjá Veðurstofunni segir að það verði þó úrkomulítið austanlands, eins og svo oft í þessari vindátt, og hiti verði þar vel fyrir ofan frostmark fram á kvöld. Það er áfram suðvestanátt með éljagangi í kortunum á morgun. Einnig er von á stærri úrkomubökkum með samfelldri snjókomu. „Vindstyrkur verður víða strekkingur, en gæti orðið allhvasst í verstu éljahryðjunum og eru mestar líkur á því með suður- og vesturströndinni. Áfram verður lítil eða engin úrkoma á Austurlandi. Víða má búast við vægu frosti á morgun,“ segir veðurfræðingurinn. Það sé hins vegar útlit fyrir hægara veður á föstudag og laugardag, en væntanlega muni herða á frosti.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ föstudag:Vestlæg átt 3-10 m/s, en 10-15 A-lands. Víða él, en þurrt SA-til. Frost 0 til 5 stig. Hægari norðanátt um kvöldið og herðir á frosti. Á laugardag:Hæg breytileg átt og víða léttskýjað framan af degi, kalt í veðri. Gengur í suðvestan 8-13 seinnipartinn með snjókomu eða slyddu S- og V-lands um kvöldið. Hiti um og undir frostmarki. Á sunnudag:Suðvestan 8-15 m/s og slydda eða snjókoma, en rigning við ströndina. Þurrt um landið NA-vert. Hiti 0 til 4 stig. Á mánudag:Gengur í norðanátt með ofankomu á norðurhelmingi landsins, en rofar til syðra. Kólnandi veður. Á þriðjudag:Útlit fyrir að dragi úr norðanáttinni, stytti upp og áfram kalt í veðri.
Veður Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira