Kröpp lægð á leiðinni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. febrúar 2019 07:32 Vindaspá Veðurstofu Íslands á hádegi í dag. veðurstofa íslands
Í dag gengur nokkuð kröpp lægð frá Faxaflóa og til norðaustur yfir á Húnaflóa að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar kemur jafnframt fram að lægðabrautin hafi verið mikið á reiki í spánum síðasta sólarhring en miðað við staðsetningu lægðarinnar núna er líklegast að útkoman í dag verði allhvöss suðvestanátt á vestanverðum landinu með skúrum eða éljum en sunnan hvassviðri eða stormur víða á Norðurlandi frá Húnaflóa og austur í Skagafjörð. „Í kvöld og nótt dregur úr vindi á öllu landinu en næsta lægð rennir sér norður eftir í fyrramálið og ber rigningu eða slyddu með sér inn á Suðaustanvert landið og á Austfirði, en svalara veður og norðanátt yfir landið vestanvert. Næstu daga má sjá fleiri lægðir í kortunum, þær eru misdjúpar en eiga það sameiginlegt að geta breyst frá núverandi spám, og því mikilvægt nú sem áður að fylgjast vel með veðurspám og ekki síst veðurathugunum, sérstaklega ef fólk ætlar að ferðast á milli landshluta,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Austlæg átt víða 8-15 m/s og rigning en slydda með köflum. Snýst í suðvestan 10-18 m/s með morgninum en jafnvel stormur á Norðurlandi um og eftir hádegi. Skúrir eða él suðvestan til en rofar til um norðan og austanvert landið. Hiti 2 til 7 stig í dag.Mun hægari vindur og úrkomulítið í kvöld og nótt og kólnar aftur en austanátt og rigning eða slydda sunnan og austan til í fyrramálið og hlánar þar en norðlæg átt, úrkomulítið og hiti um frostmark vestan til.Á miðvikudag:Austlæg og síðar breytileg átt, 8-15 m/s, en vestlægari um kvöldið. Rigning eða slydda með köflum sunnan- og austanlands og hiti 0 til 5 stig, en annars dálítil snjókoma eða él og vægt frost.Á fimmtudag:Breytileg og síðar austlæg átt, 3-10 m/s. Skýjað og sums staðar él, en þykknar upp með snjókomu eða slyddu um landið SA-vert um kvöldið. Frost 0 til 6 stig.Á föstudag:Norðvestan- og vestanátt, sums staðar allhvöss eða hvöss. Víða snjókoma, mest á Norðurlandi, en líkur á slyddu eða rigning við A-ströndina. Hiti um frostmark við ströndina, en annars vægt frost.
Veður Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Sjá meira