Næsta lægð í febrúarsyrpunni á leiðinni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. febrúar 2019 07:41 Það er vissara að fylgjast vel með veðurspánni og færð á vegum í dag. vísir/vilhelm
Síðdegis í dag mun næsta lægð í febrúarsyrpunni koma upp að austanverðu landinu. Því má búast við rigningu við suðurströndina og á Austfjörðum en slyddu eða snjókomu til fjalla og inn til landsins að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Það mun bæta í ofankomuna síðdegis og því mun skyggni minnka verulega. Vestan til er tíðindaminna í veðrinu og ætti að sjást eilítið til sólar. „Á morgun eru líkur á éljum í flestum landshlutum en rofar til austanlands, og svo er útlit fyrir áframhaldandi lægðagang og umhleypingar um og eftir helgi. Það er enn talsvert rót á spám, og vissara að gera ekki langtímaplön um ferðalög eða útivist án þess að fylgjast vel með þróuninni,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Breytileg átt, 3-10 m/s en suðvestan 8-15 austan til í fyrstu. . Skýjað með köflum eða léttskýjað en þykknar upp og fer að rigna á Austfjörðum og Suðausturlandi með morgninum en slydda eða snjókoma til fjalla. Dregur úr úrkomu um tíma eftir hádegi.Rigning á láglendi austan til síðdegis, en snjókoma inn til landsins og él á Vestfjörðum. Suðvestan strekkingur og él í flestum landshlutum í nótt og á morgun en styttir upp og léttir til á Austurlandi. Frost 0 til 5 stig, en hiti 0 til 5 stig við suður- og suðausturströndina.Á fimmtudag og föstudag:Suðlæg eða breytileg átt og 5-13 m/s og víða él, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Frost 0 til 6 stig, en hiti 0 til 4 stig við suðurströndina.Á laugardag:Fremur hæg austlæg átt og lengst af bjart í veðri en gengur í austan og norðaustan 8-15 m/s sunnan og vestan til um kvöldið og slydda eða snjókoma við suðurströndina. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum norðan til en hiti yfir frostmarki syðst um kvöldið.Á sunnudag:Austan- og norðaustanátt. Snjókoma norðan- og austanlands en annars þurrt að mestu. Dálitlar skúrir syðst um kvöldið en styttir að mestu upp norðaustan til. Hiti um frostmark, en vægt frost til landsins.
Veður Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Sjá meira