Seðlabankinn heldur vöxtum óbreyttum Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. febrúar 2019 08:56 Már Guðmundsson seðlabankastjóri. VÍSIR/STEFÁN
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum verða því áfram 4,5%. Þetta kemur fram í yfirlýsingu peningastefnunefndar. Þá segir í yfirlýsingu að samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í febrúarhefti Peningamála er gert ráð fyrir að töluvert hægi á hagvexti í ár og að hann verði 1,8%. „Þetta er um 1 prósentu minni vöxtur en bankinn gerði ráð fyrir í nóvember og gangi það eftir yrði það minnsti hagvöxtur sem mælst hefur frá árinu 2012. Hægari vöxtur stafar einkum af samdrætti í ferðaþjónustu. Horfur eru því á að spenna í þjóðarbúskapnum minnki hraðar en áður var talið,“ segir í yfirlýsingu. Mun peningastefnan á næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga. Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, gera grein fyrir ákvörðun og yfirlýsingu nefndarinnar á fundi klukkan 10 í Seðlabankanum. Streymt verður beint frá fundinum hér á Vísi.
Íslenska krónan Íslenskir bankar Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira