Guðrún segir tíðarandann annan í dag en þegar hún greindi frá bréfum Jóns Baldvins Birgir Olgeirsson skrifar 14. janúar 2019 11:46 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra. FBL/Stefán
Guðrún Harðardóttir segir tíðarandann í dag allt annan en þegar hún steig fram árið 2012 með bréf sem Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hafði sent henni þegar hún var um þrettán ára aldur. Guðrún er frænka eiginkonu Jóns Baldvins. Guðrún stofnaði sérstakan Metoo-hóp sem er ætlaður konum sem hafa sögur að segja af Jón Baldvini. Guðrún var gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun þar sem hún sagði 300 konur í þeim hópi í dag. Guðrún sagði frá bréfunum í viðtali við Nýtt líf en í bréfunum sem Jón Baldvin sendi mátti finna berorðar kynlífslýsingar. Guðrún sagði engan sigurvegara í því máli en hún sagði að með því að stíga fram hefði hún náð að gera hreint fyrir sínum dyrum út frá fjölskyldu sinni. Stundin greindin frá frásögnum fjögurra kvenna um áreitni Jóns Baldvins fyrir helgi en þar á meðal sagði Guðrún frá því í Stundinni að aðdragandi þessara bréfa hefði verið lengri og grófari en því sem hún hafði lýst í Nýju lífi árið 2012. Getur sagt meira vegna Metoo Guðrún sagði Metoo-byltinguna hafa gert það að verkum að hún treysti sér til að segja frá meiru. Þegar hún lagði af stað með bréfin fyrir viðtalið árið 2012 ræddi hún við lögfræðinginn sinn sem sagði henni strax að hluti þeirra brota sem hún lýsti væru fyrndur og það væri langsterkast að hún einbeitti sér að því sem lægi fyrir svart á hvítu, það er að segja bréfin sem Jón Baldvin sendi henni. Guðrún sagði í Morgunútvarpi Rásar 2 að hún hefði haft mörg bréf í sínum fórum en flest voru fyrnd nema tvö. „Núna hefur maður leyfi til að segja alla söguna án þess að vera dæmdur athyglissjúkur og maður sendir skömmina á réttan stað. Nú hefur maður leyfi til að segja sannleikann og af því við erum svo margar þá eru okkur trúað,“ sagði Guðrún. Hún sagði tíðarandann í dag öðruvísi en árið 2012, þó það sé ekki langt liðið frá þeim tíma. Umfjöllun Nýs Lífs vakti mikla athygli árið 2012 og seldist fyrsta prentun upp. Skellur hversu lítið var gert úr bréfunum Þegar hún opinberaði bréfin árið 2012 varð hún að eigin sögn ekki vör við mikla breytingu í samfélaginu gagnvart Jóni. Hún sagðist hafa haft miklar væntingar fyrir birtinguna. „Og það var svolítill skellur hvað það var lítið gert úr þessu. Ég bjóst við því að það myndi koma alda af konum á eftir mér þá en þær voru ekki tilbúnar þá en eru það núna. Ég ber enga biturð gagnvart þeim núna. Þær eru hetjur þessar sem hafa komið fram núna. Þær hafa engin bréf, þær hafa engar sannanir. Þær hafa bara orð á móti orði eins og ég sagði og sumar eru búnar að hafa þetta í maganum í 50 ár. Maður getur ekki ímyndað sér hvað það er erfitt og þær eru að standa sig alveg svakalega vel. Og það skiptir engu máli hvort þær eru að koma fram undir nafni eða engu nafni,“ sagði Guðrún í samtali við Morgunútvarp Rásar 2. Hún sagðist hafa varað konurnar við að þær skyldu ekki hafa neinar væntingar eftir að greint frá sinni sögu. „Ég er vön því í þessu að maður leggur spilin á borðið og fólk þykist ekki sjá þau,“ sagði Guðrún. Jón Baldvin Hannibalsson hefur sagst munu svara ásökunum síðar, þegar þær hafi allar komið fram.FBL/GVA Segir afsökunarbeiðni Jóns innantóm orð Hún sagðist vonast til þess að með þessum frásögnum sé hægt að vara aðra við honum. Hún sagðist að öðru leyti hafa aftengt sig Jóni, henni sé alveg sama um hann. Hún sagðist hafa fengið afsökunarbeiðni frá honum en hún hefði borist áður en hún vissi af frásögnum annarra kvenna. Jón baðst afsökunar á bréfunum í Fréttablaðinu en þar viðurkenndi hann sök og sagðist harma að hafa valdið fólki, sem honum þykir vænt um í sinni nánustu fjölskyldu sárindum og hugarangri að ósekju. Guðrún sagði þessa afsökunarbeiðni vera innantóm orð að hennar mati og hún taki ekki mark á henni. Hún hafi enga löngun til að fyrirgefa Jóni. „Ég ætla að fá að vera reið í friði með þessum konum. Við erum búnar að tengjast saman og ég get ekki svarað í dag hvað við viljum fá út úr þessu. Það er rosalega frelsandi að setja saman þennan texta og senda hann frá sér.“ Hér má heyra viðtalið við Guðrún í Morgunútvarpi Rásar 2 í heild sinni. Jón Baldvin hefur boðað að hann muni svara þessum ásökunum síðar.
MeToo Mál Jóns Baldvins Hannibalssonar Mest lesið Aðdragandinn að endinum hjá ríkislögreglustjóra Innlent Hótar að kæra BBC fyrir einn milljarð dala Erlent Héldu samverustund þar sem að tvö ár eru liðin Innlent Fellaskóli vann Skrekk Innlent Bjarga Gunnfaxa með því að flytja inn samskonar flugvél Innlent Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Erlent Breytingar á húsaleigulögum samþykktar sem lög Innlent Dómsmálaráðherra verði að segja satt og rétt frá Innlent Farsæll ferill eða í meira lagi umdeildur? Innlent Arndís Soffía tekur við af Grími Innlent Fleiri fréttir Héldu samverustund þar sem að tvö ár eru liðin Fellaskóli vann Skrekk Aðdragandinn að endinum hjá ríkislögreglustjóra Bjarga Gunnfaxa með því að flytja inn samskonar flugvél Hvatningarverðlaun gegn einelti afhent á Laugarvatni Tekist á um afgreiðslu velferðarnefndar Dómsmálaráðherra verði að segja satt og rétt frá Leiðtogaprófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík Mælist nú ekki með eins jákvætt viðhorf til kvenleiðtoga Nýr lögreglustjóri fljótur að ákveða sig og nýir vextir hjá Arion Breytingar á húsaleigulögum samþykktar sem lög Arndís Soffía tekur við af Grími Strætisvagni ekið á leikskólastarfsmann og barn Farsæll ferill eða í meira lagi umdeildur? Skyggnst inn í Hegningarhúsið Enginn gleymir þessum degi fyrir tveimur árum Heldur fullum launum Sigríður Björk hverfur á braut og umboðsmaður vill endurskoða meðferðarheimilin Flestum þykir Guðrún og Sigmundur hafa staðið sig illa Sigríður Björk segir af sér Ósammála lækni og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga – fyrri dagur Rússar nýta samsæriskenningar til að réttlæta innrásina í Úkraínu Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Hálfur annar tími og þrjú ólík farartæki til að sækja slasaðan göngumann Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Lestir 205 steypubíla fóru í nýja brú yfir Breiðholtsbraut Íslandsbanki ríður á vaðið og svipast um í Hegningarhúsinu „Gramsaði í munum“ og ók síðan brott á stolnum bíl undir áhrifum Vill leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjanesbæ Sjá meira