Fullur og með dúfur í skottinu Baldur Guðmundsson skrifar 3. janúar 2019 06:30 Maðurinn virðist hafa verið á fljúgandi ferð. Vísir/Vilhelm
Maður var handtekinn í Kópavogi í aðfaranótt miðvikudags í kjölfar umferðaróhapps. Hann er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum. Athygli vegfaranda vakti að skömmu eftir óhappið hófu dúfur að flögra út úr bílnum. Þóra Jónasdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kópavogi, staðfestir í samtali við Fréttablaðið að dúfur hafi verið á vettvangi, en samkvæmt henni hafði bílnum verið ekið á umferðarmerki. Sjónarvottur sem hafði samband við Fréttablaðið segir að bíllinn hafi virst gjörónýtur eftir áreksturinn, hann hafi tekið niður tvo staura áður en hann nam staðar. Þá hafi ökumaðurinn virst illa til reika og reynt að flýja vettvang. Honum varð ekki kápan úr því klæðinu. Þóra segir að lögregla hafi haft hendur í hári mannsins og að hann sé grunaður um ölvun við akstur. Hún staðfestir að í bílnum hafi verið búr og að þar hafi verið ummerki eftir fugla, auk þess sem dúfur hafi verið á vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Þóra tekur fram að dúfunum hafi ekki virst hafa orðið meint af, frekar en ökumanninum sjálfum.
Birtist í Fréttablaðinu Lögreglumál Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira