Magnús áfram útvarpsstjóri Sigurður Mikael Jónsson skrifar 5. janúar 2019 07:00 Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri RÚV. Fréttablaðið/Stefán.
Magnús Geir Þórðarson verður áfram útvarpsstjóri næstu fimm árin en hann hefur gegnt starfinu síðan í mars 2014. Þetta staðfestir Kári Jónasson, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins, í samtali við Fréttablaðið. Kjarninn greindi fyrst frá. Ráðningartími útvarpsstjóra er fimm ár en stjórn RÚV hefur heimild til að endurráða útvarpsstjóra til fimm ára aftur, en þó aðeins einu sinni. Það ákvæði hefur stjórnin nýtt sér. „Þetta er þannig að ef stjórnin vill ekki framlengja við hann samninginn þá þarf að segja honum upp með tólf mánaða fyrirvara og hefði þurft að gera það í apríl á síðasta ári,“ segir Kári. Þar sem staðan var ekki auglýst þá framlengist ráðningin um önnur fimm ár. Hann segir stjórnina mjög ánægða með störf Magnúsar Geirs sem útvarpsstjóra. „Já, hann er öflugur og er að gera marga góða hluti og það er margt í pípunum í Efstaleiti sem kemur í ljós á árinu.“ Aðspurður segir Kári að kaup og kjör útvarpsstjóra séu þau sömu og áður en laun hans voru hækkuð af stjórninni síðast árið 2017 og eru um 1.800 þúsund krónur á mánuði.
Birtist í Fréttablaðinu Fjölmiðlar Mest lesið Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Innlent Segja stutt í samkomulag en sprengjum rignir enn Erlent „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Gekk berserksgang og beraði sig Innlent Eldur í þvottahúsi á Granda Innlent Var að streyma á TikTok þegar hann féll til jarðar og lést Erlent Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Innlent Fjöldi án rafmagns vegna vonskuveðurs í Noregi Erlent Skoðanabróðir Orbans og Fico vinnur kosningar í Tékklandi Erlent Fleiri fréttir Stjórnarformaður RÚV vill að Ísrael verði tafarlaust vikið úr Eurovision Gekk berserksgang og beraði sig Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Eldur í þvottahúsi á Granda Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Fokdýrar flugferðir, ögurstund á Gasa og óvenjulegt innbrot Boða íbúafundi vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaganna Alelda bíll á Reykjanesbraut Framkvæmdirnar komi eftir ákall frá íbúum Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Skrítin afstaða BSRB og ASÍ Tekist á um leikskólamál og árásir á Gasa Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ „Algjörlega alveg út í hött“ Umferðin færist inn á íbúðagötur Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Sjá meira