Gul viðvörun um allt land: Biðlað til ferðalanga að fylgjast vel með veðurspám Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. október 2018 07:32 Vindaspá Veðurstofunnar fyrir klukkan 18 í kvöld. Mynd/Veðurstofan
Gul viðvörun er í gildi vegna veðurs um allt Ísland, að undanskildu Suðurlandi. Veðurstofan segir að í gær hafi veðurspár breyst hratt og slíkt geti gerst í dag. Eru því ferðalangar, sem og aðrir, beðnir um að fyljgast sérstaklega vel með veðurspám fyrir kvöldið og nóttina. Þetta gildir einkum fyrir þá sem eru á norðanverðu landinu eða hyggjast ferðast þangað að því er kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Gula viðvörunin er í gildi frá hádegi í dag og fram eftir nóttu. Þar segir að með morgninum sé vaxandi suðvestlæg átt og upp úr hádegi megi búast við hvassviðri eða stormi víða um land með skúrum sunnan og vestan til, en létti til um landið norðaustanvert. Í kvöld bæti í vindinn og útlit sé fyrir að hviður geti farið upp í um 40 metra á sekúndu á norður- og norðaustanverðu landinu. Í suðvestanáttinni eru svo ákveðnir staðir sem finna meira fyrir veðurhæðinni en aðrir og má þar nefna Skagafjörð, Eyjafjörð og jafnvel í kringum Smjörfjöll á austanverðu landinu en á morgun fer að draga úr vindi og kólna.Svona var staðan klukkan sjö í morgun.Mynd/Veðurstofa.Veðurhorfur á landinu Snýst í hvassa suðvestanátt með morgninum, en 15-23 m/s eftir hádegi, hvassast á NV- og V-landi. Víða skúrir eða rigning, en léttir til NA-lands síðdegis. Bætir frekar í vind seint í kvöld og geta hviður þá farið í allt að 40 m/s við fjöll á N- og NA-landi. Hiti 2 til 8 stig. Dregur úr vindi þegar líður á morgundaginn, fyrst á Vestfjörðum, víða suðvestlæg átt 8-13 m/s síðdegis. Kólnandi veður með skúrum eða éljum, en úrkomulítið A-ast.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ sunnudag: Suðvestan 13-23 m/s í fyrstu, hvassast norðantil. Dregur úr vindi þegar líður á daginn, suðvestlæg átt 8-13 m/s undir kvöld. Skúrir eða él, en úrkomulítið A-ast. Hiti 1 til 6 stig.Á mánudag:Vestan 5-13 m/s og rigning með köflum, en þurrt að mestu á N- og A-landi. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst.Á þriðjudag:Breytileg átt 5-13 m/s og þurrt í fyrstu, en rigning sunnanlands eftir hádegi og N-til um kvöldið. Hlýnandi veður, hiti 2 til 10 stig.Á miðvikudag:Gengur í stífa suðvestanátt með vætu V-lands, en þurrt um landið A-vert. Kólnandi veður.Á fimmtudag og föstudag:Útlit fyrir norðlæga átt með éljum fyrir norðan, en bjart með köflum sunnantil. Hiti víða nálægt frostmarki.
Veður Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Sjá meira