Svæðið í Fagraskógarfjalli var á hreyfingu í einhvern tíma áður en skriðan féll Birgir Olgeirsson skrifar 21. júlí 2018 10:21 Fyrstu athuganir gefa til kynna að um 7 milljón rúmmetra "vanti“ í hlíðina ofan skriðutungunnar og dalbotninum, sem gæti verið u.þ.b. magnið sem fór af stað. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Svæðið, þar sem skriðan féll í Fagraskógarfjalli í Hítardal 7. júlí síðastliðinn, var á hreyfingu í einhvern tíma fyrir framhlaupið. Þetta sýna svokallaðar bylgjuvíxlmælingar úr Sentinel-1 gervitunglum en fjallað er um þetta í skýrslu Veðurstofu Íslands um skriðuna. Útbúið hefur verið landlíkan af skriðunni byggt á ljósmyndum sem teknar voru úr þyrlu, GPS mælingum og mælingum með TLS leysitæki. Gagnvirkt þrívíddarkort af landlíkaninu sýnir vel umfang framhlaupsins. Lagt hefur verið bráðabirgðamat á rúmmál framhlaupsins út frá nýja landlíkaninu með samanburði við landlíkan frá því áður en skriðan féll. Fyrstu athuganir gefa til kynna að um 7 milljón rúmmetra „vanti“ í hlíðina ofan skriðutungunnar og dalbotninum, sem gæti verið u.þ.b. magnið sem fór af stað. Skriðan reif með sér meira efni og hækkun lands á dalbotninum er um 10 milljón rúmmetrar. Það er ljóst af ummerkjum að skriðan plægði sig niður í jarðlög á dalbotninum og því nær hún líklega talsvert niður fyrir fyrra yfirborð hans. Erfitt er að áætla þann hluta, en heildarrúmmál skriðuurðarinnar kann að vera á bilinu 10–20 milljón rúmmetrar þegar allt er talið. Unnið er að frekari greiningu á rúmmálinu.Urðin sem framhlaupið kom úr sker sig úr umhverfinu á radarmyndum sem unnar hafa verið með InSAR greiningu. Hreyfingin síðustu daga fyrir framhlaup hefur numið a.m.k. einhverjum sentimetrum, en einnig sést að svæðið var á hreyfingu árin 2017, 2016 og 2015 en hreyfingin var hægari. Að hreyfing sjáist á svæðinu áður en skriðan féll styrkir þá túlkun að stór framhlaup hafi venjulega einhvern aðdraganda sem hægt er að greina með gervitunglagögnum eða öðrum mælingum. Standa vonir til þess að hægt verði að skoða sérstaklega þær hlíðar ofan byggðar og fjölfarinna staða þar sem möguleiki er talinn á óstöðugleika og greina svæði sem eru á hreyfingu. Þau yrði síðan hægt að vakta með sömu tækni. Í greininni er tekið fram að erfitt sé að segja til um hvenær hreyfing er orðin það hröð að skriða sé yfirvofandi. Og þau svæði sem eru á hreyfingu eru misjöfn. Í sumum tilfellum eru sprungur nálægt brúnum þar sem fleygast smám saman framan af brúninni í litlum skriðum. Í öðrum tilfellum er jarðvegur sprunginn og á hreyfingu án þess að sprungur séu í sjálfum berggrunninum. Þar getur verið hætta á jarðvegsskriðum, þótt ekki sé endilega sé hætta á berghlaupi. Og í enn öðrum tilfellum nær veikleikinn niður í berggrunninn og stór stykki geta farið af stað í miklum skriðum eða berghlaupum. Veðurstofan segir að stórar skriður hafi verið áberandi á undanförnum árum og tekur fram að ekki sé hægt að útiloka að stórar skriður séu að verða tíðari vegna loftslagsbreytinga. Erfitt sé þó að fullyrða það vegna þess að tilvikin eru fá og þarf lengri tíma til að breyting verði tölfræðilega marktæk. Loftslagsbreytingar gætu aukið skriðuhættu vegna þriggja mismunandi tegunda af skriðuföllum sem viðkvæmar eru fyrir breytingum í veðurfari:Sífreraskriður geta fallið þegar hlíðar verða óstöðugar vegna bráðnunar sífrera.Skriður tengdar rigningum og leysingum geta orðið tíðari vegna þess að búast má við hlýrri vetrum og meiri úrkomuákefð.Skriður geta orðið tíðari í óstöðugum hlíðum þar sem jöklar hörfa og aðhald jökulsins minnkar. Veðurstofan tekur þó fram að ólíklegt sé að framhlaupið í Hítardal tengist sífrera. Náttúrufræðistofnun hefur tekið saman áhugaverðan lista yfir stórar skriður sem hafa fallið frá miðri síðustu öld. Þar sést að Hítardalsskriðan var óvenju stór og efnismikil.
Skriðufall í Hítardal Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Sjá meira