Heillandi Maríutásur undanfari rigningar á morgun Birgir Olgeirsson skrifar 19. júlí 2018 23:47 Maríutásur yfir höfuðborgarsvæðinu.
Veðrið á höfuðborgarsvæðinu var einstaklega fallegt í dag, heiðskírt og ágætlega hlýtt, en þegar kvölda tók blasti við borgarbúum ljósar samfelldar skýjaslæður þar sem sást í himinn á stöku stað. Var þarna um að ræða Maríutásur sem margir dáðust að og birti fjöldi myndir af þeim á samfélagsmiðlum í kvöld. Þessar Maríutásur náðu að heilla marga en veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands sagði í samtali við Vísi að þær eigi það til að vera undanfari rigningar. Það var einmitt tilfellið með þessar tásur í kvöld, því þær mynduðust í vestri og fylgdu skilum sem nálgast landið.Vísir/Samúel KarlNú undir miðnætti var blika yfir höfuðborgarsvæðinu, aflangur gulhvítur skýjabakki, sem er sannarlega undanfarni úrkomu sem verður yfir landinu á morgun. Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands sagði í samtali við Vísi að lægð úr Grænlandshafi muni færa regnsvæði til landsins í fyrramálið og mun rigna hressilega fram að kvöldi víða um land.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á morgun:Fer að rigna í fyrramálið, en hægari og þurrt A-til fram á kvöld. Hiti 10 til 18 stig að deginum, hlýjast NA-lands.Á laugardag:Suðvestlæg átt, víða 3-8 m/s, en norðlægari á Vestfjörðum. Víða dálítil væta, en þurrt eystra. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast A-lands.Á sunnudag:Norðlæg átt, 3-10 m/s, en vestlægari syðst. Væta í flestum landshlutum, en þurrt SA-til. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast á SA-landi.Á mánudag:Norðlæg átt og rigning eða súld á N-verðu landinu, en breytileg átt og stöku skúrir syðra. Kólnandi veður.Á þriðjudag og miðvikudag:Austlæg eða breytileg átt, væta með köflum og hiti yfirleitt 8 til 13 stig að deginum.Á fimmtudag:Austlægar átt, stöku skúrir og hlýnar heldur.
Veður Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira