Stormur í dag og „viðkvæm staða“ í kvöld Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. mars 2018 07:02 Það mun blása hressilega á Kjalarnesi í dag. Vísir/GVA
Núna með morgninum gengur í suðaustan storm sunnan- og suðvestanlands og segir Veðurstofan að strengir við helstu „hviðufjöllin,“ eins og Eyjafjöll, Kjalarnes, Hafnarfjall og fleiri, geti farið yfir 30 m/s. Úrkoman með þessu er að mestu slydda eða rigning, en þó ekkert aftakaveður. Þó eru gular viðvaranir í gildi fyrir Faxaflóa og Suðurland í dag og verður þeim ekki aflétt fyrr en um klukkan 6 á þriðjudagsmorgun. Annars staðar er útlit fyrir heldur hægari vind en þó allhvassan vind víða. Élin halda áfram austast, en um landið norðanvert er að mestu úrkomulítið að sögn Veðurstofunnar. Stofnunin segir jafnframt að allra vestast sé „nokkuð viðkvæm staða í kvöld“ þar sem mjög skörp skil virðast ætla að koma nálægt landi. Austur af þeim er hvöss suðaustanátt með rigningu, en vestan megin er hæg vestlæg átt og snjókoma. „Þessi mjóu skil gætu mögulega komið inn á Snæfellsnes og/eða Reykjanes og er vert að fylgjast með þróun spáa í dag,“ segir veðurfræðingur Veðurstofunnar. Það dregur svo úr vindi á morgun og styttir upp vestanlands þegar líður á daginn. Annars eru „litlar breytingar á sjálfu veðrinu,“ eins og veðurfræðingur orðar það.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Suðaustan 10-18 m/s og slydda eða rigning um landið S- og V-vert, en úrkomulítið N-lands. Heldur hægari austlægari vindur síðdegis og dregur úr úrkomu, einkum V-til. Hiti 1 til 6 stig S- og V-lands, en um og undir frostmarki annars staðar. Á miðvikudag:Austlæg átt 8-15 m/s, hvassast syðst. Skúrir eða él S- og A-lands, en þurrt og bjart annars staðar. Hiti 0 til 6 stig. Á fimmtudag:Hæg austlæg eða breytileg átt, en austan 8-13 syðst. Þurrt og bjart í flestum landshlutum, en stöku skúrir eða slydduél við SA-ströndina. Hiti breytist lítið. Á föstudag:Hæg norðaustlæg átt og dálítil él um landið N- og V-vert, en annars þurrt og bjart. Hiti nálægt frostmarki, en upp í 5 stig S-lands yfir daginn. Á laugardag:Gengur í norðaustanátt með éljum víða um land og kólnar í veðri. Á sunnudag:Útlit fyrir norðaustlæga átt og stöku él syðst í fyrstu, annars úrkomulítið og kalt í veðri.
Veður Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira