Gular viðvaranir í gildi en hlýnar smátt og smátt Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. mars 2018 08:41 Vindaspá Veðurstofu Íslands fyrir hádegið í dag. veðurstofa íslands
Gular viðvaranir eru í gildi á Suður- og Suðausturlandi vegna storms. Á vef Veðurstofu Íslands segir að undir Mýrdals- og Eyjafjallajökli sem og vestan- og sunnan undir Öræfajökli megi búast við snörpum vindhviðum sem gætu farið um og yfir 30 metra á sekúndu. Eru vegfarendur á þessum slóðum beðnir um að sýna aðgát, sérstaklega þeir sem eru á bílum sem taka á sig mikinn vind, til dæmis rútur. Í hugleiðingum veðurfræðings segir annars að nú hlýni smátt og smátt næsta sólarhringinn. Fer hiti að öllum líkindum yfir frostmark víðast hvar á landinu í dag og á morgun með röku lofti og hlýrri suðaustan átt. „Búast má við talsverðri úrkomu suðaustan og austanlands. Áfram snjóar í fjöll en rignir á láglendi. Þá er einnig er útlit fyrir að rigni suðvestantil, og ætti svifryksmengunin þá loks að dvína í höfuðborginni. Svipað útlit er næstu daga og fram yfir helgi, þó dragi heldur úr úrkomu um helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur í dag og næstu daga:Austan og síðar suðaustan 8-15 m/s en 15-23 og snarpar hviður syðst á landinu og í Öræfum. Lægir heldur á Norðvesturlandi á morgun. Víða rigning með köflum en slydda eða snjókoma í fyrstu. Samfelld úrkoma suðaustanlands og á Austfjörðum, rigning á láglendi en slydda eða snjókoma til fjalla. Hiti 1 til 6 stig í dag en 2 til 8 stig á morgun, mildast sunnanlands.Á fimmtudag:Suðaustan 8-15 m/s en 5-10 á norðvestanverðu landinu. Skýjað og víða rigning, talsverð suðaustanlands og á Austfjörðum en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 2 til 8 stig, mildast syðst.Á föstudag og laugardag:Suðaustan 8-13 og dálítil væta, en hægari vindur og þurrt um landið norðanvert. Áfram milt í veðri.Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:Útlit allhvassa sunnanátt með rigningu sunnan- og vestanlands, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 2 til 7 stig, en frystir að nætulagi fyrir norðan og austan.
Veður Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira