Bjórdósin risastóra komin í leitirnar: „Þetta er einhver húmor“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. mars 2018 18:04 Tankurinn fannst í Gufunesi. Mynd/Böðvar
Þrjú þúsund lítra vatnstankur Hestamannafélagsins Spretts, sem málaður er eins og bjórdós frá Bola og hefur verið týnd í nokkra daga, er komin í leitirnar. Árvökull vegfarandi kom auga á hana við ströndina í Gufunesi, skammt frá gömlu Áburðarverksmiðjunni. „Hún er á bak við einhvers staðar, ég skil þetta ekki,“ segir Böðvar Guðmundsson hjá Spretti í samtali við Vísi. „Þetta er einhver húmor eða vitleysa.“Líkt og kom fram á Vísi fyrr í dag var um vika frá því að tankurinn, sem erum 3000 lítrar og sex metra hár, hvarf en meðlimir Spretts vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar kerran var horfin. Í fyrstu töldu þeir að einhver hefði lánað hana en þegar svo reyndist ekki vera er líklegt að um þjófnað hafi verið að ræða. Biðlaði Böðvar til íbúa höfuðborgarsvæðisins að hafa augun opin fyrir tankinum og bar það árangur í dag en tveir aðilar höfðu samband við Böðvar nú síðdegis og sögðust þeir hafa séð kerruna í Gufunesi, þar sem hún reyndist vera. Ólíklegt er að einhver eftirmál verði af málinu nú þegar tankurinn er fundinn en stefnt er að því að sækja kerruna síðar í kvöld. „Ég ætla að reyna að koma mér upp eftir og ná í hana,“ segir Böðvar. „Það er bara verið að bíða eftir góðum bíl í þetta.“
Tengdar fréttir Hestamenn furða sig á dularfullu hvarfi þrjú þúsund lítra bjórdósar Þrjú þúsund lítra vatnstankur Hestamannafélagsins Spretts, sem málaður er eins og bjórdós frá Bola, hefur ekki sést í nokkra daga. 18. mars 2018 12:37 Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að ráðast á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Sjá meira
Hestamenn furða sig á dularfullu hvarfi þrjú þúsund lítra bjórdósar Þrjú þúsund lítra vatnstankur Hestamannafélagsins Spretts, sem málaður er eins og bjórdós frá Bola, hefur ekki sést í nokkra daga. 18. mars 2018 12:37