Bilun í skólphreinsistöð í Hraunavík Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. janúar 2018 17:47 Dælu- og hreinstöðin í Hraunavík í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær
Bilun kom upp í frárennslidælum í dælu- og hreinsistöð Hafnarfjarðarbæjar í Hraunavík í dag. Hluti skólps frá stöðinni mun því renna beint út í sjó í allt að tvo sólarhringa á meðan viðgerð stendur yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Eftir athugun á hreinsibúnaði stöðvarinnar í Hraunavík kom í ljós að ekki var óhætt að keyra búnaðinn með hámarksafköstum á meðan unnið er að viðgerð. Nú mun hluti skólps frá stöðinni því renna fram hjá kerfinu og í gegnum frárennslirör sem nær tvo kílómetra út í sjó, að því er segir í tilkynningu. Þá er búist við því að viðgerð muni taka einn til tvo sólarhringa. Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis hefur jafnframt verið látið vita af biluninni. Viðbragðsaðilar eru nú við störf í stöðinni og munu ekki hætta fyrr en viðgerð er lokið. Hafnfirðingar gætu enn fremur orðið varir við það að fuglar safnist saman við útrennslið á meðan ástandið varir. Engin sjóböð eru þó stunduð á svæðinu og ættu bæjarbúar því ekki að verða varir við bilunina að öðru leyti, segir í tilkynningu.
Umhverfismál Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira