Lægðin veldur usla síðdegis Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. janúar 2018 07:41 Ferðamenn gætu þurft að halda sér fast seinni partinn. Vísir/ernir
Það mun rjúka upp í suðaustanstorm á Suðvesturlandi, eða 18 til 25 m/s, síðdegis í dag. Appelsínugul viðvörun er í gildi fyrir þetta svæði, sem og á Austfjörðum og Suðausturlandi en gul viðvörun fyrir önnur landsvæði. Á höfuðborgarsvæðinu má þannig gera ráð fyrir að samgöngur raskist og hætt er við foki á lausamunum. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, til dæmis á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Á Austurlandi gerir Veðurstofan ráð fyrir mikilli rigningu og talsverðum vatnavöxtum í ám og lækjum sem gætu raskað samgöngum. Að sama skapi fer líka að rigna og hlýna í veðri. „Ef við reynum að finna eitthvað jákvætt við veðurspá dagsins, þá má nefna að hlýindin í dag og á morgun ættu víða að vinna bug á hálkunni,“ segir jákvæður veðurfræðingur Veðurstofunnar. Þannig má til að mynda gera ráð fyrir allt að 12 stiga hita á morgun. Það dregur svo hratt úr vindi suðvestanlands í kvöld en hvessir þá norðan- og austanlands, með appelsínugulri viðvörun. Svo fer að lægja á morgun. Spáð er stormi á öllum 17 spásvæðum fyrir mið og djúp umhverfis allt landið.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ föstudag:Sunnan og suðaustan 18-23 m/s, en hægari vestanlands. Víða rigning, mikil suðaustantil á landinu. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Snýst í suðvestan 13-18 vestanlands um kvöldið með skúrum eða slydduéljum og kólnandi veðri og fer þá að draga úr rigningu á Suðausturlandi.Á laugardag:Suðvestan og sunnan 10-18 og skúrir eða él, en léttskýjað á norðaustanverðu landinu. Slydda eða rigning á Suður- og Vesturlandi um kvöldið. Hiti 0 til 4 stig.Á sunnudag:Hvöss suðvestanátt með slyddu eða snjókomu og síðar éljum, en léttir til austanlands síðdegis. Kólnandi veður.Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:Norðvestlæg átt og snjókoma eða él norðantil á landinu, annars úrkomulítið. Frost 2 til 10 stig
Veður Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira