Snjókoma og él næstu daga Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. desember 2017 06:50 Það mun eflaust snjóa á Esjuna á næstunni. Vísir/Vilhelm
Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri austlægri átt í dag en víða 5 til 10 m/s við sjávarsíðuna. Það verði bjartviðri en dálítil él nyrst á landinu og á Austurlandi og mun bæta í éljagang þar í nótt. Frost 2 til 14 stig, kaldast inn til landsins en dregur úr frosti sunnantil annað kvöld. Að sama skapi mun hvessa eilítið á morgun, víða verður 10 til 15 m/s snemma um nóttina og fer að snjóa. Þannig verður snjókoma með köflum á sunnan- og vestanverðu landinu fram á laugardag en léttskýjað á Austurlandi. Á gamlárs- og nýársdag er útlit fyrir fremur hæga norðlæga átt, en þó kalda við Suðausturströndina, él norðan- og austantil á landinu en léttskýjað syðra. Á vef Vegagerðarinnar segir jafnframt að búast megi við hálku nær alls staðar á landinu í dag. Greiðfært sé þó á flestum vegum á láglendi Suðvesturlands. Það sé flughálka á Fellsströnd og ófært í Árneshreppi en þar er verið að moka þessa stundina. Vegirnir um Breiðdalsheiði og Öxi eru að sama skapi ófærir. Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ föstudag:Austlæg átt 3-8 m/s og þurrt og bjart, en austan 8-13 og él eða snjókoma með suðurströndinni og allra nyrst á landinu. Frost 3 til 14 stig, kaldast inn til landsins.Á laugardag:Austlæg átt 5-10 en 10-15 syðst. Líkur á éljum eða snjókomu í flestum landshlutum, en yfirleitt þurrt inn til landsins. Frost 1 til 10 stig.Á sunnudag (gamlársdagur):Norðan og norðaustan 8-13 m/s og él norðan- og austanlands, en hægari vindur og bjartviðri suðvestantil á landinu. Áfram frost um allt land.Á mánudag (nýársdagur):Norðlæg eða breytileg átt og dálítil él nyrst á landinu. Áfram kalt í veðri.Á þriðjudag:Ákveðin austanátt með snjókomu á austurhelmingi landsins en bjartviðri vestantil. Dregur víða úr frosti.Á miðvikudag:Útlit fyrir austlægri átt með köldu og björtu veðri en vaxandi suðaustanátt, hlýnar og þykknar upp um kvöldið.
Veður Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira