Rólegra en undanfarnar nætur á Suðurlandi Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. ágúst 2017 09:35 Mikið annríki var hjá lögreglunni á Suðurlandi um helgina en sérstaklega þurfti að hafa eftirlit með skemmtanahaldi á tjaldstæðinu á Flúðum. Vísir/Vilhelm
Nóttin var mun rólegri en undanfarnar nætur hjá lögreglunni á Suðurlandi. Talsvert hefur fækkað á tjaldsvæðum í Árnessýslu en hvorki fíkniefnamál né líkamsárásir komu til kasta lögreglu í nótt að því er segir í Facebook-færslu lögreglunnar á Suðurlandi. Þá var einnig allt með nokkuð kyrrum kjörum hjá lögreglu á Norðurlandi eystra og Lögregla stöðvaði einn ökumann undir áhrifum áfengis og einn án ökuréttinda auk þess sem nokkrir voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Mjög öflugt eftirlit með ölvunar- og fíkniefnaakstri var viðhaft í uppsveitum, sem og við Landeyjahöfn.Minni ölvun og vímu að sjá á gestum tjaldsvæða Hvorki fíkniefnamál né líkamsárásir komu til kasta lögreglu í nótt. „Var það samdóma álit lögreglumanna að mun minni ölvun og vímu hafi verið að sjá á gestum tjaldsvæða en undanfarnar nætur,“ segir í færslu lögreglunnar á Suðurlandi. Mikið annríki hefur verið hjá lögreglu á Suðurlandi um helgina en ástandið var einna verst á tjaldsvæðinu á Flúðum, eins og fjallað var um á Vísi. Fjöldi fíkniefna- og ofbeldismála komu upp síðustu daga og þá blasti gríðarlegt rusl við mönnum á öðru tjaldsvæðinu í gær. Lögreglumenn höfðu ítrekað þurft að stilla til friðar og fyrirbyggja að upp úr syði milli gesta. Þá mun lögregla halda uppi öflugu eftirliti í dag með ölvunar- og vímuefnaakstri og „hvetur því ökumenn að huga vel að ástandi sínu eftir skemmtanahald helgarinnar, gefa sér góðan tíma til heimferðar og leggja ekki af stað nema allsgáðir og úthvíldir.“Allt með kyrrum kjörum á Norðurlandi eystra og á Vestfjörðum Varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra segir nóttina hafa verið sallarólega í umdæminu. Enginn gisti fangaklefa á Akureyri í nótt en einn ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá gekk nóttin hjá lögreglunni á Vestfjörðum „svakalega vel fyrir sig,“ að sögn varðstjóra. „Helgin er bara lyginni líkust hjá okkur, klefarnir voru tómir alla helgina.“ Umferð á Vestfjörðum er jafnframt enn með kyrrum kjörum en varðstjóri segir eitthvað af fólki hafa lagt af stað heim í gær. Hann bindur því vonir við að umferð verði ekki með fullum þunga í dag.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira