Játar að hafa brotist inn Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 29. júlí 2017 06:00 Karlmaður sem sætir ákæru vegna gruns um að hafa brotist inn í íbúð í Hafnarfirði og áreitt tólf ára stúlku kynferðislega í maí síðastliðnum játaði innbrotið þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í mánuðinum. Hann neitaði hins vegar að hafa brotið á stúlkunni. Vísir/Eyþór
Karlmaður sem sætir ákæru vegna gruns um að hafa brotist inn í íbúð í Hafnarfirði og áreitt tólf ára stúlku kynferðislega í maí síðastliðnum játaði innbrotið þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í mánuðinum. Hann neitaði hins vegar að hafa brotið á stúlkunni. Maðurinn er sakaður um að hafa brotist inn á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði þann 5. maí síðastliðinn, farið inn í svefnherbergi stúlkunnar og strokið henni um bak, farið undir nærbol hennar og niður á mjöðm. Þá er hann sagður hafa skriðið upp í rúm til stúlkunnar og reynt að strjúka henni meira, en stúlkunni tókst að lokum að læsa sig inni á baðherbergi. Maðurinn var í framhaldinu handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. ágúst næstkomandi. Hann var látinn laus nýverið, en að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur varahéraðssaksóknara voru ekki lengur skilyrði samkvæmt lögum til þess að fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald. Maðurinn er einnig grunaður um blygðunarsemisbrot en hann er sakaður um að hafa farið upp að baðherbergisglugga þann 4. maí síðastliðinn og horft á konu þar sem hún stóð fáklædd og berbrjósta. Þá var maðurinn grunaður um tvö önnur brot, kynferðisbrot og tilraun til húsbrota, sama dag og hann braust inn til fjölskyldunnar. Hann sætti gæsluvarðhaldi frá handtöku 5. maí. Aðalmeðferð málsins verður þann 28. ágúst næstkomandi.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira