Dís ráðin skrifstofustjóri á velferðarsviði Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 15. maí 2017 12:14 Dís Sigurgeirsdóttir Mynd/Aðsend
Dís Sigurgeirsdóttir hefur verið ráðin skrifstofustjóri á skrifstofu sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Staðan var auglýst 23. mars með umsóknarfrest til 16 apríl og sóttu 44 um starfið en sex drógu umsóknir sínar til baka. Dís útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1999 og með meistarapróf í mannréttindum, LL.M frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð árið 2005. Hefur hún starfað síðastliðin sjö ár hjá skrifstofu Efta í Brussel og leitt þar verkefni tengd uppbyggingarsjóði EES. Málaflokkar skrifstofunnar eru innflytjenda- og hælismál, fangelsismál, dómstólar, lögregla og kynbundið ofbeldi. Áður starfaði Dís sem sendifulltrúi á sviði dóms og innanríkismála hjá sendiráði Íslands í Brussel árin 2008 til 2010 og sem sérfræðingur í dóms-og kirkjumálaráðuneytinu árin 2000 til 2008. Í tengslum við störf sín hefur Dís setið í fjölmörgum nefndum sem tengjast starfsviði hennar, bæði innanlands sem og erlendis, svo sem um mansal og kynbundið ofbeldi, réttindi samkynhneigðra, , þróun mannréttinda og menntun fanga. Þá var hún formaður tilraunaverkefnis um sáttamiðlun í sakamálum sem innleiddi sáttamiðlun í íslenskan rétt. Það var ráðningarstofan Hagvangur sem annaðist úrvinnslu umsókna í samráði við velferðarsvið, að því er kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Ráðningar Mest lesið Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Viðskipti innlent Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Viðskipti erlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Samstarf Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Viðskipti innlent Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Viðskipti erlent „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Viðskipti innlent „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Atvinnulíf Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð Viðskipti innlent Ekki hægt að fá bílastæði án bókunar Neytendur Fleiri fréttir Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Nói Siríus aftur í innlendri eigu Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Atvinnuleysi 7,1 prósent í febrúar Verðbólga eykst enn Völdu tilboð World Class í útboði sem er aftur í kæruferli Lindex opnar þar sem Next var áður Meiri launaþrýstingur geti hrakið fyrirtæki úr landi Eva Signý og Aníta til starfa hjá Borgarleikhúsinu Bára nýr fjármálastjóri Samherja Bandarískt flugfélag í vetrarflug í fyrsta skipti eftir faraldur Semja um 148 stúdentaíbúðir við Háskólann í Reykjavík Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Þörf á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Katrín tilnefnd í stjórn Eikar Sjá meira