Verjandi Hreiðars Más segir hann ekki hafa verið í aðstöðu til að fylgjast með viðskiptunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. september 2016 12:15 Málið var tekið til meðferðar í Hæstarétti klukkan átta og mun standa fram eftir degi. Vísir/GVA
Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings vissi ekki hvernig staðið var að kaup-og sölutilboðum hjá deild eigin viðskipta Kaupþings og þá vissi hann ekki hvernig viðskiptunum var háttað enda var hann ekki í aðstöðu til að fylgjast með þeim. Þetta kom fram í máli Harðar Felix Harðarsonar, verjanda Hreiðars Más, fyrir Hæstarétti í dag en þar fer fram málflutningur í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings.Þar er Hreiðar Már ákærður ásamt átta öðrum fyrrverandi starfsmönnum Kaupþings, meðal annars þeim Sigurði Einarssyni fyrrverandi stjórnarformanni bankans og Ingólfi Helgasyni sem var forstjóri Kaupþings á Íslandi. Hreiðar Már var sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrra, en ákæruvaldið vill meina að mikil viðskipti deildar eigin viðskipta Kaupþings með hlutabréf í bankanum sjálfum hafi miðað að því að halda verði bréfanna stöðugu. Verjandi Hreiðars sagði að ekkert hafi gefið til kynna á þeim tíma þegar meint brot áttu sér stað að það væri óheimilt fyrir útgefendur hlutabréfa að stunda viðskipti með þau sömu bréf. Slík viðskipti hafi verið stunduð um árabil og fátt benti til þess að þau væru litin hornauga af eftirlitsaðilum á borð við Fjármálaeftirlitið.Engir persónulegir hagsmunir „Þannig verður það ekki með sanngirni sagt að hann hafi átt að sjá það fyrir að starfsemi eigin viðskipta hafi verið ólögmæt og refsiverð,“ sagði Hörður Felix og bætti við að hvorki hafi verið hægt að lesa það út úr refsilögum, fordæmum dómstóla eða í umfjöllun fræðimanna. Því ætti 69. grein við um skjólstæðing hans sem og 7. grein Mannréttindasáttmála Evrópu. Þegar kom að refsiákvörðun í málinu lagði Hörður Felix áherslu á það að Hreiðar Már hefði ekki haft nokkra persónulega hagsmuni af þeim viðskiptum sem deilt er um í málinu. Því sagðist hann telja að ekki ætt að bæta neitt við fimm og hálfs árs dóm sem Hreiðar hlaut í Al Thani-málinu, fari svo að hann verði sakfelldur í þessu máli. Þá rakti Hörður Felix hvernig Hreiðar Már hefur haft réttarstöðu sakbornings í rúm sjö ár, eða síðan í júní 2009. „Hann hefur sætt rannsókn í á annan tug mála með handtökum, gæsluvarðhaldi, húsleitum og farbanni. [...] Þá voru fjögur sakamál rekin samtímis gegn skjólstæðingi mínum sem er án efa einsdæmi í réttarsögunni. [...] Það þarf ekki að hafa mörg orð um það álag sem felst í því að þurfa að verjast á mörgum vígstöðum samtímis, allt undir stöðugri neikvæðri umfjöllun fjölmiðla og á stundum ábyrgðarlausum ummælum forráðamanna þjóðarinnar og eftirlitsstofnana,“ sagði Hörður Felix og ítrekaði að hann taldi ekki efni til að gera Hreiðari Má frekari refsingu.
Markaðsmisnotkun Kaupþings Tengdar fréttir Saksóknari harðorður: „Enn stærri skellur fyrir þjóðfélagið“ "Þegar spilaborgin hrundi eins og hún hlaut að gera,” sagði Björn Þorvaldsson saksóknari í Hæstarétti í morgun. 9. september 2016 09:52 Allir sakborningar í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings mættir í Hæstarétt Alls eru níu manns ákærðir í málinu, ýmist fyrir markaðsmisnotkun og/eða umboðssvik á tímabilinu 1. nóvember til 8. október 2008. 9. september 2016 08:35 Mest lesið „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Viðskipti innlent „Svona samtöl snúast ekki um að skamma fólk fyrir fjarvistir“ Atvinnulíf Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Viðskipti innlent „Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“ Atvinnulíf Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Viðskipti innlent Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Viðskipti innlent Loka bráðum á 3G-kerfið Viðskipti innlent Ekki hægt að fá bílastæði án bókunar Neytendur Breytingar á stjórn Sýnar Viðskipti innlent Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Nói Siríus aftur í innlendri eigu Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Atvinnuleysi 7,1 prósent í febrúar Verðbólga eykst enn Völdu tilboð World Class í útboði sem er aftur í kæruferli Lindex opnar þar sem Next var áður Meiri launaþrýstingur geti hrakið fyrirtæki úr landi Eva Signý og Aníta til starfa hjá Borgarleikhúsinu Bára nýr fjármálastjóri Samherja Bandarískt flugfélag í vetrarflug í fyrsta skipti eftir faraldur Semja um 148 stúdentaíbúðir við Háskólann í Reykjavík Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Þörf á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Katrín tilnefnd í stjórn Eikar Norðurál getur keypt meiri orku af Landsvirkjun Magnús Örn til Fossa Isavia ANS hefur hamskipti og verður Avians Sjá meira
Saksóknari harðorður: „Enn stærri skellur fyrir þjóðfélagið“ "Þegar spilaborgin hrundi eins og hún hlaut að gera,” sagði Björn Þorvaldsson saksóknari í Hæstarétti í morgun. 9. september 2016 09:52
Allir sakborningar í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings mættir í Hæstarétt Alls eru níu manns ákærðir í málinu, ýmist fyrir markaðsmisnotkun og/eða umboðssvik á tímabilinu 1. nóvember til 8. október 2008. 9. september 2016 08:35