Sólin glennir sig í vikunni Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 11. júlí 2016 08:22 Hádegið í dag verður milt en vætusamt á Norð-austurlandi. Vísir/Vedur.is
Einhver rigning verður á landinu í dag, þó ekki á því vestanverðu þar sem verður að mestu þurrt. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Útlit er fyrir sólarglennur í vikunni en þó virðist sem Costa Del Sol veðrið sem leikið hefur við Íslendinga að undanförnu láti ekki sjá sig með sama hætti á komandi dögum. „Norðaustlæg átt 3-10 m/s, en 8-13 um landið NV-vert. Súld eða dálítil rigning fyrir norðan og austan, stöku skúrir S-til, en að mestu þurrt V-lands. Heldur hægari á morgun. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast SV-til.“ Veður verður milt áfram. „Í dag spáir norðaustlægri átt með dálítilli vætu fyrir norðan og austan, en S-lands má búast við einhverjum skúrum þó að þeir verði nú máttlausari en í gær,“ segir á vef Veðurstofunnar. „Um landið vestanvert verður að öllum líkindum þurrt, en SV-lands má þó búast við stöku skúrum og áfram verður hlýjast þar eða upp í um 15 stig. Á miðvikudag lítur út fyrir að rofi til fyrir norðan og fram að helgi má búast við sólarglennum þar, en stöku skúrir eða rigning sunnan heiða. Helgarspáin er enn að taka á sig áreiðanlega mynd og ætti að skýrast betur á næstu dögum.“ Á þriðjudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað og dálítil væta NA-til, rigning með köflum sunnanlands, en yfirleitt þurrt um landið V-vert. Hiti frá 6 stigum með NA-ströndinni, upp í 16 stiga hiti á SV-landi. Á miðvikudag: Hæg austlæg eða breytileg átt og skúrir, en rofar smám saman til um landið norðanvert. Hiti 8 til 15 stig. Á fimmtudag: Vaxandi suðaustlæg átt og þykknar upp, 8-15 m/s og rigning S- og V-lands undir kvöld, en hægari vindur og bjart með köflum um landið N- og A-vert. Hiti 9 til 14 stig. Á föstudag: Suðlæg eða breytileg átt, rigning með köflum S-lands og hiti 9 til 14 stig, en þurrt fyrir norðan og hiti upp í 19 stig. Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir vestlæga átt og rigningu um allt land, einkum V-til. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið Sjá meira