Málglaður framkvæmdastjóri Dortmund heldur áfram að skjóta á Man. City Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. júlí 2016 17:45 Hans-Joachim Watzke segir það sem honum finnst. vísir/getty
Hans-Joachim Watzke, hinn málglaði framkvæmdastjóri Borussia Dortmund, er ekki hættur að skjóta á Manchester-liðin United og City. Nú segir hann sitt félag hafa meira aðdráttarafl en City-liðið. Dortmund hefur boðið upp á nettar pillur ætlaðar Manchester-liðunum á síðustu vikum og mánuðum eftir sölur á leikmönnum þangað. Þegar Manchester City keypti Ilkay Gündogan frá Dortmund sagði í yfirlýsingu frá þýska liðinu: „Miðjumaðurinn yfirgefur áttfalda Þýskalandsmeistara og gengur í raðir Manchester City, sem hafnaði í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.“ Dortmund skaut líka á Manchester United í yfirlýsingu sinni um sölu á Armenanum Henrikh Mkhitaryan en þar stóð: „Mkhitaryan vildi ganga í raðir liðsins sem endaði í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.“ Að þessu sinni var Watzke ekkert að fela sig á bakvið neinar yfirlýsingar heldur skaut hann beint á City þegar hann ræddi við fréttamenn um undirbúning Dortmund-liðsins fyrir nýtt tímabil. „Það er svo einfalt að það eru bara fimm lið í heiminum sem hafa meira aðdráttarafl og eru fjársterkari en við. En þegar kemur að aðdráttarafli höfum við klárlega meira en Manchester City. Það er alveg augljóst,“ sagði Hans-Joachim Watzke.
Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Valur - Stjarnan 3-1 | Valur í úrslit Fótbolti Fimm ástæður þess að Ísland vinni EM Fótbolti „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Íslenski boltinn Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Íslenski boltinn „Auðvitað á þetta að vera svona hjá KSÍ líka“ Fótbolti Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Handbolti Svona var fundurinn fyrir fyrsta leik Íslands á EM Fótbolti Glódís alveg búin að kveðja meiðslin og allar klárar í slag við Finna Fótbolti Opnaði Instagram og sá að hún væri á leiðinni á EM í Sviss Fótbolti „Ef þú vilt ekki vera hérna, farðu bara“ Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Sjá meira