Segir þjóðarleiðtoga uggandi vegna fáfræði Trump Samúel Karl Ólason skrifar 26. maí 2016 12:15 Vísir/EPA
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir að margir þjóðarleiðtogar heimsins séu uggandi yfir framgangi forsetaframbjóðandans Donald Trump. Hann sagði þá hafa ástæðu til þess þar sem Trump hefði sýnt fram á fáfræði varðandi utanríkismál og ummæli hans og tillögur virtust oftar en ekki miða að því að fanga umfjöllun og fá fyrirsagnir, frekar en að tryggja öryggi Bandaríkjanna. Þetta sagði forsetinn á leiðtogafundi G7-ríkjanna sem nú stendur yfir í Japan. Hann tók einnig fram að þjóðarleiðtogar sem Obama hefði rætt við væru ekki vissir um hve alvarlega þeir ættu að taka ummælum Trump. Ummæli Trump hafa margsinnis valdið fjaðrafoki víða um heim. Fyrrum forseti Mexíkó hefur kallað Trump „hataða hvítingjann“ og borgarstjóri Parísar hefur sagt hann vera „mjög heimskan“. Meðal þess sem Trump hefur sagt er að banna ætti öllum múslimum að fara til Bandaríkjanna, að hann ætli sér að byggja vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, hann sagði að yfirvöld í Mexíkó væru að senda glæpamenn og nauðgara til Bandaríkjanna. Trump hefur einnig sagst vera tilbúinn til að funda með Kim Jong-Un og að samband hans við Bretland ætti ekki eftir að vera gott, yrði hann forseti.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Sjá meira