Cristiano Ronaldo valinn bestur í heimi annað árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2015 19:09 Cristiano Ronaldo fékk Gullboltann frá Sepp Blatter. Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid og portúgalska landsliðsins, fékk í kvöld Gullbolta FIFA sem besti knattspyrnumaður heims. Þetta er annað árið í röð sem Cristiano Ronaldo vinnur þessi verðlaun en hann endaði fjögurra ára sigurgöngu Lionel Messi í fyrra. Ronaldo vann yfirburðarsigur í kjörinu en hann fékk 37,66 prósent atkvæða eða miklu meira en næstu menn. Lionel Messi kom til greina eins og Manuel Neuer, markvörður Bayern München og þýska landsliðsins. Messi varð í öðru sæti annað árið í röð en Neuer endaði í þriðja sætinu. Þetta er í þriðja sinn sem Cristiano Ronaldo fær Gullboltann en hann vann hann einnig 2008 og 2013. Cristiano Ronaldo átti frábært tímabil með Real Madrid sem vann Meistaradeildina á síðustu leiktíð. Liðið var einnig spænskur bikarmeistari og endaði árið á því að verða Heimsmeistari félagsliða. Ronaldo skoraði 52 mörk í 43 leikjum á árinu en hann átti einnig 17 stoðsendingar á félaga sína.
Fótbolti Spænski boltinn Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal að missa menn í meiðsli Vigdís Lilja á skotskónum Hákon: Þú vilt spila þessa leiki Spánn og Austurríki við það að komast á HM ´26 Åge Hareide glímir við sjúkdóm Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Arna og Sædís spiluðu í sigri Våleranga „Eggert kominn með stóra brosið og allir glaðir“ Belgar í brasi og þurfa að bíða eftir HM-sæti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Hvernig umspil færi Ísland í? Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Króatar á HM en draumur Færeyja úti Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Rosenörn yfirgefur FH Taylor dæmir úrslitaleikinn í Varsjá Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Montiel til KA Marta getur aftur unnið verðlaunin sem voru nefnd eftir henni Sjá meira