Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Sindri Sverrisson skrifar 29. júní 2026 11:31 Noa van der Bij smellir kossi á Cody Gakpo eftir tap Hollands gegn Argentínu á síðasta heimsmeistaramóti. Getty/Jean Catuffe Cody Gakpo er staðráðinn í að spila áfram með Hollandi á HM í fótbolta þrátt fyrir áfallið sem hann og unnusta hans, Noa van der Bij, urðu fyrir þegar þau misstu ófæddan son sinn.
Van der Bij greindi frá áfallinu á Instagram á laugardaginn og birti mynd þar sem sjá mátti parið haldast í hendur yfir litlu teppi og prjónuðum hatti. Þau Gakpo höfðu átt von á syninum í heiminn í október. Fyrir á parið soninn Samuel. „Það er með sorg í hjarta sem við deilum þeim hræðilegu fréttum að drengurinn okkar lést á meðgöngunni,“ skrifaði Van der Bij. „Takk fyrir ást ykkar og stuðning. Elijah Raphael Gakpo. Að eilífu elskaður. Að eilífu sonur okkar.“ Hún birti síðan mynd af kerti og krossi með skilaboðunum: „Við fórum í kirkju til að kveikja á kerti. Eftir á gengum við að leikvellinum við kirkjuna með syni okkar, Samuel. Þar var aðeins eitt annað barn. Hann hét Elijah. Þetta hefði ekki getað verið fallegra tákn frá Guði. Hann minnti okkur á að litli drengurinn okkar er aldrei langt í burtu.“ „Tekst á við þetta með fjölskyldu sinni, á sinn hátt“ Gakpo er staddur með hollenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu og hefur þegar skorað tvö mörk, í 5-1 sigrinum gegn Svíþjóð í riðlakeppninni. Þrátt fyrir missinn verður hann áfram með Hollandi í nótt þegar liðið mætir Marokkó, klukkan 1 að íslenskum tíma, í 32-liða úrslitum mótsins. Liðsfélagar Gakpo og landsliðsþjálfarinn Ronald Koeman hafa gert sitt besta til að veita honum stuðning en Koeman segir að hjá Gakpo sjálfum hafi aldrei komið annað til greina en að spila áfram á HM. Virgil van Dijk og Cody Gakpo hafa upplifað mikla sorg saman og Gakpo getur sótt stuðning til fyrirliða síns.Getty/Alex Pantling „Þetta eru miklar sorgarfréttir fyrir okkur og Cody og hans fjölskyldu. Við höfum gert það sem við getum til þess að styðja við hann, bæði leikmenn og starfslið. Fyrstu dagana fékk hann auðvitað fullt leyfi til að fara og vera með fjölskyldu sinni. Hann tókst mjög vel á við þetta og það kom aldrei til þess að hann segði: „Ég vil fara heim, ég vil vera með fjölskyldunni,““ sagði Koeman þegar hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir leikinn við Marokkó. „Svo þannig tókum við þessu og það sýndi hve hann er þroskaður. Ég held að þetta muni ekki vera mjög íþyngjandi fyrir hann hvað frammistöðu varðar innan vallar. Hann tekst á við þetta með fjölskyldu sinni, á sinn hátt, og það er mjög fallegt og kraftmikið og við skiljum við þetta þar. Við höfum verið honum til stuðnings, hann getur stólað á okkur, og leikmennirnir tókust á við þetta með sínum hætti,“ sagði Koeman. Sending love, prayers and support from all of us to you and your family, Cody ❤️🧡 https://t.co/KoFlp6ba7N— Liverpool FC (@LFC) June 27, 2026 Fyrirliðinn Virgil van Dijk, sem einnig er liðsfélagi Gakpo í Liverpool þar sem leikmenn hafa þurft að takast á við mikið áfall eftir andlát Diogo Jota í fyrra, kvaðst bera mikla virðingu fyrir því hvernig Gakpo hefði höndlað fréttirnar. „Það mikilvægasta er að spyrja: „Hvað þarft þú?“ Þetta eru hræðilegar fréttir og þær sýna að fótboltinn er aukaatriði. Það eru mikilvægari hlutir í lífinu. Þetta er mjög sorglegt en Cody tekst á við þetta og hann er ákafur í að komast í næstu umferð. Hann mun gera allt sem hann getur [til að hjálpa Hollandi áfram], það er það sem áherslan er á núna,“ sagði Van Dijk. „Það er ekki þannig að ég hafi lært eitthvað nýtt um hann en auðvitað eru aðstæðurnar... Maður vill ekki þurfa að upplifa þetta en af því sem ég sá frá Cody, þá pössuðu viðbrögð hans við hann. Hann er mjög þroskaður, mjög fullorðinslegur. Ég ber mikla virðingu fyrir því hvernig hann og fjölskylda hans takast á við þetta. Hversu hræðilegt sem það er, þá ber ég mikla virðingu fyrir því,“ sagði Van Dijk.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira