Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2026 13:36 Enzo Maresca skoðar hér Meistaradeildarbikarinn í bikarskáp Manchester City. Manchester City Enzo Maresca tekur við Manchester City af Pep Guardiola en þetta staðfestir félagið sjálft á samfélagsmiðlum í dag. Ítalinn hefur skrifað undir samning sem gildir til sumarsins 2029.
Fyrrverandi stjóri Chelsea kemur í stað Guardiola sem hætti í vor eftir tíu ár í starfi. Maresca fær nú það krefjandi verkefni að fylgja eftir frábærum árangri Pep. Welcome back, Enzo 🩵🔗 https://t.co/7BpGdG82na pic.twitter.com/2RfmNA7qMj— Manchester City (@ManCity) June 29, 2026 Maresca hefur lengi verið orðaður við starfið en City þurfti að ganga frá málum við Chelsea sem rak Ítalann á síðasta tímabili. Félögin hafa nú gengið frá sínum málum og Maresca getur byrjað að undirbúa liðið. Maresca á sér fortíð í þjálfarateymi City sem aðstoðarmaður Guardiola. Það var tímabilið 2022 til 2023 en eftir það gerðist hann knattspyrnustjóri Leicester City og kom liðinu aftur upp í ensku úrvalsdeildina. Maresca tók við Chelsea sumarið 2024 en var rekinn 1. janúar í ár eftir stormasamt tímabil. Hann átti þá þrjú og hálft ár eftir af samningi sínum sem skýrir af hverju City þurfti að binda nokkra lausa hnúta og borga Chelsea til að losa Maresca endanlega. Manchester City hefur misst af enska meistaratitlinum undanfarin tvö tímabil en vann enska bikarinn og enska deildabikarinn á nýloknu tímabili. The man for the occasion 😮💨 pic.twitter.com/2SUz05uByV— Manchester City (@ManCity) June 29, 2026
Enski boltinn Manchester City Mest lesið „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Íslenski boltinn Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Fótbolti Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Íslenski boltinn Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Enski boltinn „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ Íslenski boltinn „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ Íslenski boltinn „Þetta gekk eins og í sögu“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Íslenski boltinn Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Enski boltinn „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Sjá meira