Kyndilberi neytendahagsmuna? Skjóðan skrifar 1. október 2014 14:15 MS er markaðsráðandi fyrirtæki í einokunarstöðu. Sektarálagning skiptir slík fyrirtæki litlu máli því sektinni verður velt út í verðlag og lendir á neytendum. Vísir/Stefán
Samkeppniseftirlitið hefur sektað Mjólkursamsöluna (MS) um næstum fjögur hundruð milljónir fyrir samkeppnislagabrot þar sem fyrirtækið misnotaði markaðsráðandi stöðu sína. Þetta er ekki síst merkilegt fyrir þá sök að MS er að verulegu leyti undanþegið samkeppnislögum. En það virðist ekki nægja og betur má ef duga skal. Risinn gat ekki látið hjá líða að skella viðbótarálagningu á hrámjólk sem hann seldi litlum samkeppnisaðilum. MS hefur notið ríkulegra forréttinda á markaði allt frá því Mjólkursölulögin frá 1934 skekktu samkeppnistöðu á markaði og gerðu mjólkurbúi Thors Jensens að Korpúlfsstöðum ókleift að keppa við ríkisstuddan iðnað. Á þeim áttatíu árum sem síðan eru liðin hafa nokkrar tilraunir verið gerðar til að stofna til alvöru samkeppni við MS og tengd fyrirtæki. Ostaframleiðsla í Hveragerði mátti síns lítils. Sama gilti um Baulu. Kjörís neyddist til að framleiða jurtaís í stað rjómaíss til að losna undan hrammi MS. Mjólku var komið á hnén með sérstakri viðbótarálagningu á heildsöluverð hrámjólkur sem keypt var af MS. Sú viðbótarálagning var endurgreidd Mjólku þegar hún var komin í hendur Kaupfélags Skagfirðinga. MS er markaðsráðandi fyrirtæki í einokunarstöðu. Sektarálagning skiptir slík fyrirtæki litlu máli því sektinni verður velt út í verðlag og lendir á neytendum. Markaðsmisnotkun ráðandi fyrirtækja mun ekki linna fyrr en stjórnendur þeirra verða persónulega látnir sæta ábyrgð fyrir samkeppnisbrot. Samkeppnisbrot eru brot gegn neytendum þó að þau beinist að fyrirtækjum. MS hefur í gegnum tíðina sýnt neytendum nær takmarkalausa lítilsvirðingu. Fyrirtækið auglýsir vöru sína sérstaklega sem íslenska en skirrist ekki við að blanda innfluttu smjöri saman við íslenskt og selja sem óblandað íslenskt. MS mun vera stærsti sykurinnflytjandi landsins og margar vörur fyrirtækisins eru hlaðnar viðbættum sykri. Á það ekki síst við um vörur sem ætlaðar eru börnum og ungmennum. Nú mun næst á dagskrá hjá MS að selja skyr í Bandaríkjunum. Samkvæmt Forbes viðskiptatímaritinu telst það mjög góður árangur að selja nýja vöru á Bandaríkjamarkaði fyrir tæplega 40 milljónir dollara, eða tæplega 5 milljarða króna, á fyrsta ári. Kostnaðurinn við að koma nýrri vöru á markað er hins vegar talinn nema ríflega 70 milljónum dollara, eða 8,5 milljörðum króna, samkvæmt Forbes, og er þó engin trygging fyrir góðum árangri. MS þarf því að selja ansi margar skyrdósir í Bandaríkjunum til að ná upp í kostnað. Gangi dæmið ekki upp verður reikningurinn væntanlega sendur til íslenskra neytenda, sem eru hvort eð er vanir rándýrum og sykurmettuðum mjólkurvörum frá fyrirtæki sem skákar í skjóli einokunarverndar og innflutningstolla.Skjóðan er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi. Skjóðan skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum.
Skjóðan Tengdar fréttir Vísitala veiðigjalda Þegar horft er annars vegar til þróunar verðlags á neysluvörum hér á landi og hins vegar þróunar á veiðigjöldum til ríkisins kann að vera vænlegt fyrir lántakendur að berjast fyrir því að verðtryggð lán miðist við vísitölu veiðigjalda fremur en neysluverðsvísitölu, sem er viðkvæm fyrir hvers kyns skattheimtu ríkisins. 24. september 2014 11:00 Mest lesið Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Viðskipti innlent Gengi Alvotech tekur kipp Viðskipti innlent „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Viðskipti innlent Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Viðskipti innlent Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Sjá meira
Vísitala veiðigjalda Þegar horft er annars vegar til þróunar verðlags á neysluvörum hér á landi og hins vegar þróunar á veiðigjöldum til ríkisins kann að vera vænlegt fyrir lántakendur að berjast fyrir því að verðtryggð lán miðist við vísitölu veiðigjalda fremur en neysluverðsvísitölu, sem er viðkvæm fyrir hvers kyns skattheimtu ríkisins. 24. september 2014 11:00