Af nýrri heimsmynd og úreltri hægri vinstri pólitík Hallur Hallsson skrifar 24. janúar 2013 06:00 Þegar koma á höggi á andstæðing er gjarnan sagt að viðkomandi sé umdeildur. Vinir mínir á Fréttablaðinu segja að William Tiller, prófessor við Standfordháskóla, sé hvorki meira né minna en „stórkostlega umdeildur“. Tiller er prófessor emiritus í orkusálfræði. Hann hefur sagt að læknisfræði framtíðar verði reist á orkuflæði líkamans. „Future medicine will be based on controlling energy in the body.“ Tiller hefur skrifað um 250 fræðigreinar og nokkrar bækur. Við hann er kennd stofnun sem rannsakar samhengi orku og efnis. Þeir fara í manninn fremur en boltann til þess eins að koma höggi á mig. Fréttablaðið fer sumsé til rjúpu með fallbyssu, en það er önnur saga.Orka er undirstaða lífsins Ýmsir heimsfrægir vísindamenn hafa talað í svipuðum dúr og Tiller. Albert Szent-Gyorgyi Nóbelshafi 1937, Murray Gell-Mann Nóbelshafi 1969, Harald Burr, prófessor við Yale, sovéski vísindamaðurinn Semyon Kirlian, læknirinn Ben Johnson, líffræðingurinn Bruce Lipton, fleiri og fleiri. Með E=mc² sagði Einstein að efni væri orka. A fylgir B líkt og dagur fylgir nótt. Kenning Einsteins var spádómur, forspá um það sem kemur. Hann opnaði dyr. Áhrifin eru hægt og hljótt að koma í ljós. Uppgötvun Einsteins árið 1905 um efni og orku hefur leitt vísindin á slóð orkunnar. Árið 1996 gaf ég út heimspekirit sem Gunnar heitinn Dal þýddi. Lögmálin sjö um velgengni eftir Deepak Chopra sem stendur traustum fótum í nýrri heimsmynd. Gunnar Dal ritaði formála: „Efnið er skapað. Efnið kemur og fer. Tíminn er skapaður og hann líður undir lok. Hann kemur og fer. Rúmið hefur ekki merkingu án tíma og efnis. Allt er þetta skapað.“ Dyrnar sem Einstein opnaði staðfestist í skammtafræðinni, quantum physics. Efni er skapað úr orku, ljóseindum óháðum tíma og rúmi. Þetta eru mikil tíðindi, risavaxin. Ef orka er grundvöllur lífsins þá hljótum við að leita til upprunans, ekki satt? Af orkubrautum og minni frumunnar Árið 1985 uppgötvaði bandaríski sálfræðingurinn Roger Callahan að neikvæðar tilfinningar stífli orkubrautir. Í september 2004 skýrðu vísindamenn við University of Texas frá því að frumur hafi minni; geymi neikvæða og jákvæða lífsreynslu. Jákvæðar minningar séu undirstaða góðrar heilsu, neikvæðar minningar hafi áhrif á hegðan og leiði til sjúkdóma. „Vísindamenn leita skilnings á því hvernig frumur festa minningar í sessi og jafnvel hvort meðhöndla megi sjúkdóma með því að stilla tíðnisvið,“ sagði staðarblað í Dallas.Ný heimsmynd, nýr skilningur Mannkyn stendur í dyragætt og horfir inn í nýjan heim. Heimsmynd okkar er að breytast. Lífsorkan er grundvöllur lífsins. Allt er háð orku. Þessi nýja heimsmynd er hægt og hljótt að ryðja sér braut. „Hinar gömlu forsendur efnishyggjunnar eru fallnar,“ sagði vinur minn Gunnar Dal. Bandarísk heilbrigðisyfirvöld rekja 90% allra sjúkdóma til streitu, Bruce Lipton segir 95% að lágmarki. Við fæðumst en neikvæð lífsreynsla truflar tíðnisvið og afvegaleiðir. Er krabbamein nokkurs konar „svarthol“ sem smám saman stækkar og stækkar. Ef svarthol eru „þarna úti“ af hverju ekki í mannslíkamanum? Með nýrri heimsmynd kemur nýr skilningur. Hægri vinstri pólitík gengur úr sér enda reist á úreltri heimsmynd efnishyggju. Misrétti ræðst af neikvæðni sem í bernsku er hlaðið inn á „harða diskinn“. Ef mannkyn á að eiga framtíð verður að rjúfa vítahring. Til þess að komast út úr öngstræti 20. aldar hugsunar verður mannkyn að brjóta af sér hlekki úreltrar efnishyggju. Hægri vinstri pólitík með óskilgreinda miðju hefur ýtt mannkyni fram á brún hengiflugs.Með lífsorku á fund atómsins Á síðustu árum hefur mönnum lærst að virkja lífsorkuna með áhrifaríkari hætti en áður. Við förum inn í skammtaveröldina á fund atómsins, leiðréttum tíðni sem kann að hafa raskast; tíðni sem er orsök neikvæðra tilfinninga og sjúkdóma. Framtíðin er mætt til leiks. Við förum til upphafsins. Hinn stórkostlegi bónus í þessu öllu saman er að lífsorkan er kærleikur, líkt og Kristur boðaði fyrir tvö þúsund árum. Þetta kann að vera fólki í heimi efnishyggjunnar torskilið og kannski þess vegna sem Fréttablaðið á svo erfitt með að ímynda sér Taggart á Íslandi til þess að rýna á veröld bullu sem er leiksoppur eigin neikvæðra tilfinninga og tekur samfélag og fjölskyldu í gíslingu. Þetta skoða þeir í Skotlandi. Er ekki vert að gera slíkt hið sama á Íslandi? Meira síðar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Illugi og Orka Energy Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson Skoðun Skoðun Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar