Anelka með tvö mörk og Chelsea í flottum málum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2011 21:39 Nicolas Anelka fagnaröðru marka sinna með Fernando Torres. Mynd/AFP
Chelsea er komið með annan fótinn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-0 sigur á danska liðinu FC Kaupmannahöfn á Parken í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í 16 liða úrslitunum en sá seinni fer síðan fram á Stamford Bridge 16. mars. Frakkinn Nicolas Anelka skoraði bæði mörk Chelsea-liðsins í kvöld og það lítur út fyrir að meiri samkeppni um framherjarstöðurnar í liðinu hafi heldur betur kveikt í kappanum. Chelsea byrjaði af miklum krafti í Kaupmannahöfn og var nokkrum sinnum búið að skapa mikla hættu þegar Nicolas Anelka kom þeim í 1-0 á 17. mínútu. Anelka komst þá inn í slæma sendingu frá Jesper Grönkjær og skoraði af öryggi. Chelsea hélt áfram að sækja en tókst ekki að skora fleiri mörk fyrir hálfleik. Fernando Torres var nokkrum sinnum við það að sleppa í frábær færi en fór oft illa með góða stöðu með klaufalegum móttökum. Nicolas Anelka kom Chelsea síðan í 2-0 á 54. mínútu efir að hafa fengið flotta sendingu frá Frank Lampard. Danirnir gáfust ekki upp og reyndu að minnka muninn í lokin en það tókst ekki og Chelsea-menn fögnuðu góðum sigri.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Körfubolti Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Handbolti Sakaði Luke Littler um dónaskap Sport Stóra boxkvöldinu í Gamla bíói slegið á frest Sport Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Íslenski boltinn Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Íslenski boltinn Mickelson neyðist til að sleppa Masters Golf Sonur Schwarzenegger vann fyrstu keppnina sína Sport Fleiri fréttir Forsetinn segir af sér og UEFA hótar Ítölum Breiðablik - FH | Önnur tilraun til að krýna meistara meistaranna Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Draumabyrjun hjá Lindu Líf í atvinnumennskunni Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Fyrrverandi markakóngur HM lagður inn á sjúkrahús „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Gæti Guardiola tekið við Ítölum? Mæta meisturum Arsenal eftir sigur í framlengingu Íslenskur sigurvegari á fyrstu leiktíð Evrópubikarsins Niðurlægðu Real og mæta Glódísi Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni Gattuso stígi til hliðar en hver tekur við? „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Besta-spáin 2026: Mæta með læti Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Norðmaður tryggði Írak inn á HM og mætir Noregi í fyrsta leik Kane ver mark Blika Glódís skoraði gegn United og tryggði Bayern áfram í undanúrslit Diljá skoraði og Sædís lagði upp Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Lukaku skrópar á æfingar og er hótað refsingu Sjá meira