„Mér fannst við ekki góðir“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 25. júní 2026 21:22 Helgi Guðjónsson skorar hér fyrsta mark leiksins gegn Breiðabliki í kvöld. vísir/Diego Þrátt fyrir frábæran 4-1 sigur gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld voru Íslandsmeistarar Víkings ekki ýkja ánægðir með sinn leik og ætla sér að gera betur þegar liðin mætast aftur á sunnudaginn.
Liðin mætast að nýju á sunnudag í undanúrslitum Mjólkurbikarsins og var Helgi Guðjónsson, sem skoraði tvö marka Blika í kvöld, spurður út í það eftir sigurinn í kvöld. „Í bikarnum er bara einn séns. Það getur hvað sem er gerst og þú ert bara úr ef þú tapar. Við verðum að gera töluvert betur en í dag. Mér fannst við ekki góðir, sloppí og lélegir á boltann. Við töpuðum boltanum með lélegum sendingum og verðum að gera töluvert betur en við gerðum í dag,“ sagði Helgi og það verður að teljast athyglisvert í ljósi úrslitanna í kvöld en sýnir ef til vill metnaðinn í Víkinni. Helgi skoraði fyrsta mark leiksins með frábæru skoti á lofti og lagði þannig grunninn að sigrinum. „Við náðum að færa boltann hratt yfir til hægri og Aron Elís spottar mig þarna á fjær. Ég hitti hann ágætlega,“ sagði Helgi hógvær. Víkingar hafa nú unnið tólf leiki í röð í Bestu deildinni og það hlýtur að vera góð tilfinning að vera hluti af þessu liði, eða hvað? „Hún er bara frábær, eins og menn gætu búist við. Þetta er toppurinn á tilverunni hérna heima. Virkilega gaman og við erum að njóta þess eins og þú sérð,“ sagði Helgi og vísaði til frábærra stuðningsmanna Víkings: „Þeir taka yfir stúkuna hérna og hjá Fram í síðasta leik, og svo að sjálfsögðu á okkar heimavelli. Þeir eru gjörsamlega magnaðir og eiga mikinn heiður í þessu gengi í sumar hjá okkur.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Tryggvi Hrafn klárar tímabilið með Val „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell „Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Fannst ÍBV brjóta fyrir vítadóminn „Jákvætt að tengja saman tvo sigra“ „Ákvörðun dómarans verðskuldar ekki komment“ Uppgjörið: KA - FH 0-1 | Úr fallsæti og auka á þjáningar norðanmanna Uppgjörið: Víkingur - ÍBV 2-2 | Annað misstig meistaranna Uppgjörið: ÍA - Þór 2-0 | Þrír í röð án taps hjá ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Árni gekk í það heilaga og fékk frí Von Völsungs lifir góðu lífi Sjá meira