Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Stefán Árni Pálsson skrifar 26. júní 2026 08:53 Martin byrjar að æfa með íslenska landsliðinu í næstu viku en framundan eru tveir mikilvægir landsleikir. vísir/einar Martin Hermannsson segir að Þýskalandstitillinn sem hann vann með Alba Berlin á dögunum hafi endað eins og Netflix sería. Óvíst er hvar hann spilar á næsta tímabili en hann er ekki á leiðinni heim. „
Að enda þetta svona, þú veist á toppnum eftir mikinn rússíbana síðastliðnar vikur, ég held þetta sé svona eitt af þessum afrekum sem maður áttar sig á þegar maður er hættur og lítur til baka. Ég er bara virkilega stoltur,“ segir Martin í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi. „En manni var kippt harkalega niður á jörðina núna eftir að ég kom til baka til landsins. Það voru bara tvö börn sem biðu manns og hafa vaknað sjö á morgnana og svona, þannig að raunveruleikinn er tekinn við,“ segir Martin sem fagnaði titlinum vel síðustu daga. Fagnað í þrjá daga „Bara eins og á að gera. Ég ætla kannski ekkert að fara út í smáatriði en það er búið að vera lítið sofið síðustu þrjá daga. Þetta lið skráði sig á spjöld sögunnar. Það er ekkert lið sem hefur farið í fimm leiki í öllum seríunum. Það er ekkert lið sem hefur farið og unnið oddaleikinn á útivelli í sögu þýsku deildarinnar. Og pottþétt ekkert lið sem hefur verið 20 stigum undir í hálfleik og komið til baka. Það er ansi margt sem þessi úrslitakeppni bauð upp á.“ En hvernig leið Martin þegar hann var 20 stigum undir í hálfleik og það á útivelli gegn Bayern Munchen? Hafði hann trú á verkefninu? „Bara alls ekki. Mér leið bara ömurlega. Ég djókaði með það við konuna eftir leik að mig langaði eiginlega bara ekkert að fara aftur út á völlinn. Við vorum það slakir í fyrri hálfleik að ég bara trúði þessu eiginlega ekki og ég vissi bara að Bayern var það sterkt og er það sterkt að þeir áttu ekki að klúðra þessari forystu og hvað þá á heimavelli. En þetta er bara eitthvað svona Netflix-myndadæmi og vonandi verður maður ógeðslega ríkur á þessu einhvern tímann á þessum titli bara á Netflix-seríu,“ segir Martin. Næsta tímabil er í ákveðinni óvissu en hann er samningslaus í fyrsta sinn í sex ár. „Þetta er svona svolítið öðruvísi sumar en bara spennandi. Ég er ekki á leiðinni heim og ekkert á leiðinni heim í framtíðinni. Ég veit að Alba vill halda mér, þeir vilja bjóða mér nýjan samning og það er annað í gangi líka, þannig að ég lofa að heyra í þér þegar það er klárt.“
Þýski körfuboltinn Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Sjá meira