„Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Andri Broddason skrifar 25. júní 2026 15:08 Ólafur Ingi Skúlason er fullur tilhlökkunar fyrir leiknum gegn Víkingi í kvöld. Vísir / Diego Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, er bjartsýnn fyrir leikinn gegn Víkingum í kvöld. Stórleikir eru skemmtilegustu leikirnir og eru leikmennirnir fullir tilhlökkunar.
Víkingur fer í heimsókn í Kópavoginn í kvöld þar sem liðin mætast í tólftu umferð Bestu deildar karla. Víkingur er sem stendur í efsta sæti deildarinnar á meðan Breiðablik er í því fjórða. „Þetta verður spennandi og skemmtilegur leikur. Við erum að mæta hörkuliði sem er á mikilli siglingu,“ segir Ólafur Ingi og bætir við að leikmönnirnir hlakki til að spila leikinn. „Allir leikir eru mikilvægir en saga liðanna síðustu ár setur extra mikið krydd á leikinn. Það er alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima.“ Breiðablik og Víkingur eiga að mætast aftur á sunnudaginn á Kópavogsvelli og því eru aðeins þrír dagar milli leikja. Sá leikur er í Mjólkurbikarnum en Ólafur segir að seinni leikurinn hafi lítil áhrif á þann fyrri. „Okkar mantra hefur alltaf verið að horfa bara einn leik fram í tímann, þá er leikurinn á sunnudaginn aðeins fyrir aftan. Við höfum það bak við eyrað að það er stutt milli leikja en fókusinn er fyrst og fremst á leikinn í kvöld.“ Davíð Ingvarsson og Kristófer Ingi Kristinsson voru ekki með Breiðablik gegn KA í síðustu umferð. Ólafur Ingi gat samt ekki staðfest að þeir yrðu klárir í leikinn í kvöld. „Það eru ansi margir leikmenn á meiðslalistanum. En menn eru að skríða saman og þetta eru nokkrir með smávægileg meiðsli. Við endurheimtum eitthvað og sjáum hversu mikið þeir geta tekið þátt í kvöld ef þeir geta tekið þátt yfirhöfuð.“
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira